Vorhreinsun hefur verið árlegur viðburður hjá Reykjanesbæ síðustu áratugi og kynnum við skipulagið fyrir árið 2023. Hreinsunarátakið verður næstu tvær helgar; 28. apríl til og með 1. maí og 5. maí til og með 7. maí.
Við hvetjum íbúa til þess að nýta þennan tíma og ráðast í vorverkin á sínum svæðum þar sem tækifæri verður til þess að losa sig við lífrænan garðaúrgang í næsta nágrenni. Söfnunarstaðir verða á eftirtöldum stöðum þar sem íbúar geta losað lífrænan garðaúrgang þeim að endurgjaldslausu. Verða ýmist opnir gámar eða kör á staðnum.
- Heiðarskóli: Bílastæði
- Malarvöllur við Hringbraut
- Njarðvíkurskóli: Bílastæði
- Akurskóli: Bílastæði
- Stapaskóli: Bílastæði
- Skógarás: Bílastæði
- Hafnir: Við strætóskýli Seljavogi
Staðsetning á kortasjá
Gámarnir eru einungis fyrir garðaúrgang og óheimilt að setja annað í gámana. Byggingaúrgangi, almennur úrgangi, spilliefnum, málmum, gleri og öðru sem tilfellur skal skilað í endurvinnslustöðvar.
Athugið að ekki verður farið í götur bæjarins til að hirða garðaúrgang.
Stóri plokkdagurinn
Stóri plokkdagurinn verður haldinn 30. apríl nk. og hvetjum við alla til að kíkja út fyrir lóðamörkin sín og plokka í sínu nærumhverfi af því tilefni.
Hér eru nokkur góð plokkráð:
- Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
- Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.
- Klæða sig eftir aðstæðum.
- Koma afrakstrinum í viðeigandi förgunarferli þar sem það fýkur ekki í burtu.
- Senda tölvupóst á umhverfismidstod@reykjanesbaer.is og láta sækja ef magnið er mikið.
- Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.
- Munum að ALLT plokk skiptir máli, sama hversu lítið það er. Það gerir allt gagn.
Verum öðrum góð fyrirmynd og hreinsum til í okkar nærumhverfi nú á vordögum og munum að þetta er bærinn okkar, ábyrgðin okkar.