165. fundur atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar haldinn 27. maí 2015 að Víkurbraut 11, kl: 17:15
Mættir : Davíð Páll Viðarsson formaður, Einar Magnússon aðalmaður, Kolbrún Jóna Pétursdóttir aðalmaður ritar fundargerðina, Hanna Björg Konráðsdóttir aðalmaður, Vilborg Jónsdóttir varamaður, í forföllum Hjartar M. Guðbjartssonar og Pétur Jóhannsson framkvæmdastjóri.
1. Atvinnumál
1.1. Staða framkvæmda í Helguvík (2014080131)
Framkvæmdastjóri sagði frá stöðu mála í Helguvík.
1.2. Skýrsla um stöðu á vinnumarkaði í apríl 2015. (2013060176)
Framkvæmdastjóri lagði fram ítarlegar tölur frá Vinnumálastofnun um stöðuna á vinnumarkaði í apríl 2015. 385 manns í Reykjanesbæ eru á atvinnuleysisskrá í apríl 2015 og 551 manns á Suðurnesjum. Það er fækkun um 140 manns í Reykjanesbæ frá sama mánuði í fyrra.
2. Málefni Reykjaneshafnar
2.1. Samkomulag um skilmála fyrir lóðarleigusamning við G2 Brenna Holdings Ltd. (2015040270)
Framkvæmdastjóri lagði fram drög að samkomulagi um skilmála fyrir lóðarleigusamning við G2 Brenna Holdings Ltd. á lóðinni að Berghólabraut 3 í Helguvík. Atvinnu- og hafnaráð samþykkir að fela hafnarstjóra að undirrita samkomulagið.
2.2. Samantekt hafnarstjóra um Helguvík dags. 25.5.2015. (2015050324)
Framkvæmdastjóri skýrði frá fundum sínum, bæjarstjóra og verðandi hafnarstjóra með fulltrúum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Innanríkisráðuneytisins síðustu vikur. Rætt var um ósk Reykjaneshafnar um ríkisstyrki með aðkomu ríkisins til uppbyggingar innviða á iðnaðarsvæðinu í Helguvík.
2.3. Prókúra Reykjaneshafnar (2014090399)
Atvinnu- og hafnaráð samþykkir að veita eftirtöldum starfsmönnum Reykjanesbæjar prókúru að bankareikningum Reykjaneshafnar:
Þórey I. Guðmundsdóttir fjármálastjóri,
Sólveig Einarsdóttir, innheimtustjóri,
Guðbjörg F. Guðmundsdóttir, innheimtufulltrúi.
2.4. Skipun regluvarðar Reykjaneshafnar hjá Fjármálaeftirlitinu. (2014090399)
Atvinnu- og hafnaráð samþykkti að skipa Halldór Karl Hermannsson, kennitala ekki birt, regluvörð Reykjaneshafnar hjá Fjármálaeftirlitinu frá 1. júní 2015.
2.5. Samkomulag um hafnar- og öryggissvæðið í Helguvík dags. 27.5. 2015. (2015050351)
Framkvæmdastjóri skýrði frá samkomulagi milli Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Landhelgisgæslu Íslands, Utanríkisráðuneytisins og Reykjaneshafnar f.h. Reykjanesbæjar um breytingar á samningi dags. 19.12. 2008 milli Reykjaneshafnar og Varnarmálastofnunar Íslands vegna hafnarmannvirkis NATO í Helguvík. Öryggissvæðið í Helguvík innan marka Reykjanesbæjar er minnkað á hafnarsvæðinu niður í 20.914 m2. Atvinnu- og hafnaráð samþykkir samkomulagið.
3. Önnur mál
3.1. Þakkir til fráfarandi hafnarstjóra (2015010547)
Ráðið vill þakka Pétri Jóhannssyni fráfarandi hafnarstjóra fyrir 40 ára óeigingjarnt starf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
__________
Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 2. júní 2015.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina 11-0.