1472. fundur

20.06.2024 08:15

1472. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn á Tjarnargötu 12, 20. júní 2024, kl. 08:15

Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Bjarni Páll Tryggvason, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét A. Sanders og Valgerður Björk Pálsdóttir.

Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Leikskólinn Drekadalur (2022100203)

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mættu á fundinn og kynntu stöðu framkvæmda við leikskólann.

2. Bókasafn Reykjanesbæjar - ný stöðugildi í Stapasafn (2024060228)

Stefanía Gunnarsdóttir forstöðumaður bókasafnsins mætti á fundinn.

Lagt fram erindi um að auka stöðugildi við Stapasafn sem mun opna sem útibú og samsteypusafn í Stapaskóla í haust 2024.

Bókun frá Margréti A. Sanders (D):

„Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að sinna Innri- Njarðvíkurhverfi eins og öðrum hverfum vel enda stækkandi hverfi með fjölda íbúa en undrast að öll uppbygging félags- og menningarstarfs í Reykjanesbæ sé utan um bókasöfn í stað þess að horfa til uppbyggingar í heild sinni.“

Bókun frá Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur (B), Bjarna Páli Tryggvasyni (B), Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur (S) og Valgerði Björk Pálsdóttur (Y):

„Mikil gróska er í gangi og verður áfram í kringum Stapaskóla þar sem opnað verður íþróttahús síðar í sumar og sundlaugina síðar í vetur. Samhliða því stendur til að bókasafnið í Stapaskóla verður opið fyrir almenning um áramót. Verður í kjölfarið mikil upplyfting þjónustu við íbúa Reykjanesbæjar og þá sérstaklega í Innri-Njarðvíkurhverfi bæjarins. Við fögnum þessari uppbyggingu og bættri þjónustu við íbúa.“

Bæjarráð áætlar að Stapasafn opni fyrir íbúa um áramót og vísar ósk um stöðugildi til fjárhagsáætlunar 2025.

3. Bókasafn Reykjanesbæjar - flutningur í Hljómahöll (2022110463)

Lögð fram tillaga stýrihóps vegna flutnings Bókasafns Reykjanesbæjar í Hljómahöll ásamt kostnaðaráætlun.

Bókun frá Margréti A. Sanders (D):

„Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að fyrst verði unnið að stefnumótun um framtíðarfyrirkomulag í húsnæðismálum stofnana og samhliða því önnur aðstöðu- og húsnæðismál sem tengjast menningarstarfsemi í Reykjanesbæ áður en farið er í umfangsmiklar og kostnaðarsamar breytingar á Hljómahöll enda segir í tillögu stýrihóps eftirfarandi:

„Hins vegar snýr tillagan að því að á haustmánuðum 2025 verði skipaður verkefnahópur á vegum Reykjanesbæjar sem mun vinna tillögur varðandi framtíðarfyrirkomulag í húsnæðismálum stofnana í Hljómahöll og samhliða því önnur aðstöðu- og húsnæðismál sem tengjast menningarstarfsemi í Reykjanesbæ. Í þeirri vinnu verði sérstaklega horft til þeirrar íbúafjölgunar sem vænst er í samfélaginu og mögulegra viðbragða við auknu umfangi og þjónustu stofnana“.“

Bókun ásamt greinargerð frá Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur (B), Bjarna Páli Tryggvasyni (B), Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur (S), Valgerði Björk Pálsdóttur (Y) og Margréti Þórarinsdóttur (U):

„Fulltrúar Framsóknar, Samfylkingar, Beinnar leiðar og Umbótar í bæjarráði samþykkja tillögu stýrihópsins sem varðar flutning bókasafnsins í Hljómahöll. Tillögurnar snúa að kostnaðarliðum sem tengjast bæði rekstri og eignfærslu.

Samþykkt er að vísa 14 milljónum í viðauka við fjárhagsáætlun 2024 og 155 milljónum í viðauka við fjárfestingaáætlun 2024. Gert er ráð fyrir geymslurými á lóð Hljómahallar innan þess kostnaðar, sem bæjarráð vill að unnið verði meira með, t.d. með tilliti til stærðar og því hvort hægt er að nýta einingar sem sveitarfélagið á þegar þær losna á næsta ári. Bæjarráð vísar hluta tillaganna þ.e. kaupum á útdraganlegri stúku í Berg og hönnun og uppsetningu á framtíðarsýningu Rokksafnsins til fjárhagsáætlunarvinnu 2025.

Ferill málsins

Á 1457. fundi bæjarráðs þann 29. febrúar sl. var tekin ákvörðun um að vinna áfram í flutningi Bókasafns Reykjanesbæjar í Hljómahöll og var sú ákvörðun staðfest með meirihluta atkvæða á 671. fundi bæjarstjórnar þann 5. mars sl. Í kjölfarið var ráðinn verkefnastjóri og skipaður vinnuhópur sviðsstjóra, stjórnenda og bæjarfulltrúa til að vinna að útfærslu á ákvörðuninni og var honum ætlað að skila útfærðum tillögum til bæjarráðs með kostnaðaráætlun.

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir ráðgjafi hefur leitt verkefnið en hún hefur viðamikla reynslu í menningarmálum og í málefnum tónlistarskóla og var m.a. í undirbúningshópi fyrir byggingu Menningarhússins Hofs á Akureyri, var framkvæmdastjóri Hofs um árabil og er núverandi stjórnarformaður í Hörpu.

Verkefnastjóri hefur, ásamt pólitískum fulltrúum, haldið stutta kynningu á hugmyndum með starfsmönnum stofnananna. Brugðist var við ábendingum sem fram komu á þessum fundum eftir fremsta megni og hafa tillögurnar sem samþykktar eru hér í dag verið samþykktar samhljóða af öllum í verkefnahópnum.

Tillagan sem hér er samþykkt inniheldur skiptingu á rýmum Hljómahallar á milli aðila sem þar verða með heimilisfesti. Sömuleiðis er farið yfir þær framkvæmdir sem ráðast þarf í til að allar stofnanir nái að þróa áfram blómlega starfsemi í breyttu starfsumhverfi með metnaðarfulla þjónustu við íbúa að leiðarljósi. Til viðbótar við þau atriði sem nefnd eru hér að ofan var horft til skilgreindra lykilþátta árangurs hjá hverri stofnun sem starfandi er í Hljómahöll og fyrir bókasafnið.

Helstu kostnaðarliðir vegna verkefnisins eru hönnun og undirbúningur, stofnbúnaður bókasafns, geymslurými á lóð, flutningur á vörumóttöku, hljóðeinangraður veggur, útdraganleg stúka í Bergi, ný framsetning á rokksýningu, hönnun og uppsetning á framtíðarsýningu Rokksafnsins, bókunarkerfi við rými, loftræsting og hljóðeinangrun í tónlistarskóla, úrbætur á móttöku o.fl.

Flestir kostnaðarliðir og verkefni sem tekin eru saman í tillögunni hafa sannarlega legið fyrir í nokkurn tíma óháð breytingum á Hljómahöll. Mætti segja að þar sé um að ræða eðlilegt viðhald og undirbúning frekar en sértækan kostnað vegna þessa verkefnis. Hvað varðar geymslurými á lóð þá er stærstur hluti þess kostnaðar fjárfesting í lausum einingum sem eflaust má selja eða setja í aðra notkun ef breyting verður á aðstöðumálum Hljómahallar á komandi árum.

Það er ánægjulegt að vinna verkefnahópsins hefur leitt það í ljós að húsnæði Hljómahallar hentar vel undir þá fjölbreyttu menningarstarfsemi sem hér um ræðir. Í tillögunni felst að allar stofnanirnar geta áfram sinnt þeirra metnaðarfulla starfi og að Hljómahöll getur áfram haldið vel utan um 7-800 manna viðburði og Rokksafnið verður áfram tryggt innan Hljómahallar.

Við þökkum Ingibjörgu og verkefnahópnum fyrir þeirra vönduðu vinnu til þessa en það er mat okkar að verkefnið hafi verið vel unnið og hefur hópurinn verið opinn fyrir þeim tækifærum sem geta skapast til enn meiri vaxtar og fyrir þeim samþættingarmöguleikum sem samvinna þeirra stofnana sem hér um ræðir getur falið í sér.

Við sjáum gríðarleg tækifæri og hlökkum til að sjá menningarhúsið Hljómahöll vaxa og blómstra enn meir með fjölbreyttri menningarstarfsemi sem íbúar og notendur þjónustunnar munu njóta góðs af.“

Bæjarráð samþykkir 4-0 að vísa 14 milljónum í viðauka við fjárhagsáætlun 2024 og 155 milljónum í viðauka við fjárfestingaáætlun 2024. Gert er ráð fyrir geymslurými á lóð Hljómahallar innan þess kostnaðar, sem bæjarráð vill að unnið verði meira með, t.d. með tilliti til stærðar og því hvort hægt er að nýta einingar sem sveitarfélagið á þegar þær losna á næsta ári. Bæjarráð vísar hluta tillaganna þ.e. kaupum á útdraganlegri stúku í Berg og hönnun og uppsetningu á framtíðarsýningu Rokksafnsins til fjárhagsáætlunarvinnu 2025. Margrét A. Sanders greiðir atkvæði á móti.

4. Strætóskólinn (2024050449)

Lögð fram bókun menntaráðs frá 12. júní 2024.

Bæjarráð samþykkir að verkefnið fari af stað í grunnskólum Reykjanesbæjar haustið 2024.

5. Bættar starfsaðstæður í leikskólum - tillögur starfshóps (2024030084)

Lagðar fram til kynningar tillögur starfshóps um bættar aðstæður í leikskólum Reykjanesbæjar og kostnaðargreining vegna tillögu um nýja verðskrá í leikskólum.

Málið er í vinnslu.

6. Umsagnarmál í samráðsgátt - hvítbók í málefnum innflytjenda (2024010258)

Lögð fram umsögn frá velferðarsviði um Hvítbók í málefnum innflytjenda mál nr. S-109/2024 í samráðsgátt Stjórnarráðsins.

Bæjarráð tekur undir umsögn Heru Ó. Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs og Hilmu H. Sigurðardóttur teymisstjóra ráðgjafar- og virkniteymis og felur skjaladeild að koma umsögninni á framfæri í samráðsgátt.

Fylgigögn:

Hvítbók í málefnum innflytjenda umsögn. RNB júní 24

7. Ársskýrslur 2023 (2024030388)

Lagðar fram ársskýrslur velferðarsviðs og mannauðsdeildar.

8. Umsögn vegna rekstrarleyfis – Svo Margt Fallegt ehf., Klapparstígur 9 (2023120164)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um rekstur gististaðar í flokki II-G. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.

9. Umsögn vegna rekstrarleyfis – Smart Luxury ehf., Heiðargil 8 (2024040105)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um rekstur gististaðar í flokki II-C. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð hafnar umsókninni með vísan til fyrirliggjandi umsagna.

10. Umsögn um geymslustað ökutækja í útleigu - CC bílaleiga ehf., Njarðarbraut 11 (2024060156)

Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.

11. Umsögn um geymslustað ökutækja í útleigu - LC21 ehf., Framnesvegur 19c (2024060198)

Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð hafnar umsókninni fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.

12. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 31. maí 2024 (2024010369)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fylgigögn:

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 948

13. Fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. 11. júní 2024 (2024010179)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar.

Fylgigögn:

Fundargerð nr. 559

14. Fundargerð lýðheilsuráðs 11. júní 2024 (2024010208)

Mál tvö úr fundargerð. Umræður um snjallsímalausa grunnskóla hafa verið í samfélaginu. Mikilvægt í þessu samhengi er að Reykjanesbær vísi þessari umræðu inn í skólana og fái hugmyndir frá skólastjórnendum hvort þetta sé framkvæmanlegt og hvort þeir telji hugmyndirnar til bóta. Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra falið að vinna áfram í málinu.

Fundargerð lýðheilsuráðs lögð fram til samþykktar. Samþykkt 5-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 49. fundar lýðheilsuráðs 11. júní 2024

15. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 11. júní 2024 (2024010207)

Mál fimm úr fundargerð. Umræður um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja – skipan vinnuhóps. Bæjarráð fagnar því að samtal er hafið við hagsmunaaðila. Formlegur vinnuhópur utan um verkefnið verður stofnaður í lok sumars.

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs lögð fram til samþykktar. Samþykkt 5-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 183. fundar íþrótta- og tómstundaráðs 11. júní 2024

16. Fundargerð menningar- og þjónusturáðs 13. júní 2024 (2024010209)

Fundargerð menningar- og þjónusturáðs lögð fram til samþykktar. Samþykkt 5-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 55. fundar menningar- og þjónusturáðs 13. júní 2024

17. Fundargerð velferðarráðs 13. júní 2024 (2024010214)

Bæjarráð fagnar opnun Velferðarmiðstöðvar Suðurnesja, sem fær heitið Suðurhlíð.

Fundargerð velferðarráðs lögð fram til samþykktar. Samþykkt 5-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 433. fundar velferðarráðs 13. júní 2024

18. Fundargerð menntaráðs 14. júní 2024 (2024010202)

Fyrsta mál fundargerðarinnar hefur verið tekið til sérstakrar umræðu undir dagskrárlið 5.

Fundargerð menntaráðs lögð fram til samþykktar. Samþykkt 5-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 375. fundar menntaráðs 14. júní 2024

19. Fundur byggingarnefndar Stapaskóla (2019051608)

Málinu frestað.

20. Stjórnarfundur Tjarnargötu 12 ehf. (2024060233)

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mættu á fundinn.

Lagt fram erindi frá byggingarnefnd varðandi loftræstikerfi á Tjarnargötu 12.

Stjórn Tjarnargötu 12 ehf. samþykkir að flýta framkvæmd við útskipti á loftræstikerfi Tjarnargötu 12.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:45.