1485. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn á Tjarnargötu 12, 3. október 2024, kl. 08:15
Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Bjarni Páll Tryggvason, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét A. Sanders og Valgerður Björk Pálsdóttir.
Að auki sátu fundinn Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
1. Mannréttindastefna Reykjanesbæjar - drög (2020021548)
Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags mætti á fundinn.
Lögð fram drög að mannréttindastefnu Reykjanesbæjar.
Bæjarráð vísar drögunum til umsagnar í nefndum og ráðum.
2. Uppbygging á Ásbrú - drög að samningi (2024070374)
Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn.
Lögð fram drög að uppbyggingarsamningi milli Reykjanesbæjar og Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar (Kadeco) um þróun íbúðabyggingar á Ásbrú.
Bæjarráð samþykkir drögin og felur Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur staðgengli bæjarstjóra að skrifa undir samninginn.
3. Eignarhaldsfélag Suðurnesja (2024090758)
Umræður um Eignarhaldsfélag Suðurnesja.
4. Umsögn vegna rekstrarleyfis – IQ Hotel apartments ehf., Seljubraut 645 (2024090150)
Erindinu frestað.
5. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 10.-11. október 2024 (2024100017)
Lagðar fram upplýsingar vegna skráningar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga.
6. Fundargerð stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja 19. september 2024 (2024040048)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja.
Fylgigögn:
52. fundur stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja 19.9.2024
7. Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 24. september 2024 (2024010259)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fylgigögn:
Fundargerð stjórn Samtaka orkusveitarfélaga - 76
8. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 26. september 2024 (2024030003)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja.
Fylgigögn:
Fundargerð 86. stjórnarfundar. 26.09.2024
9. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 27. september 2024 (2024010369)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fylgigögn:
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 952
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:05. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 15. október 2024.