1497. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn á Tjarnargötu 12, 2. janúar 2025, kl. 08:15
Viðstaddir: Bjarni Páll Tryggvason formaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir bæjarstjóri, Margrét A. Sanders, Sverrir Bergmann Magnússon og Valgerður Björk Pálsdóttir.
Að auki sátu fundinn Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Guðný Birna Guðmundsdóttir boðaði forföll, Sverrir Bergmann Magnússon sat fyrir hana.
1. Leikskólinn Drekadalur (2022100203)
Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn.
Farið yfir stöðu verkefnisins.
2. Uppsögn Grindavíkurbæjar á sameiginlegri þjónustu sveitarfélaga (2024120359)
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður mættu á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
Bæjarráð felur Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.
3. Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar - áheyrnarfulltrúar (2024110254)
Umræður um aðkomu áheyrnarfulltrúar í íþrótta- og tómstundaráð.
Bæjarráð vísar málinu til frekari umræðu í íþrótta- og tómstundaráði.
4. Fóðrun vatnafugla á Fitjum - styrkumsókn (2024120358)
Lagt fram erindi um fjárhagslegan stuðning í verkefni tengt dýravelferð.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur því miður ekki orðið við því að þessu sinni.
Fylgigögn:
Fóðrun vatnafugla á Fitjum - styrkbeiðni
5. Körfuknattleiksdeild U.M.F.G. - tækifærisleyfi (2024120386)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
6. Fundargerðir stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. 7. nóvember og 10. desember 2024 (2024010179)
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf.
Fylgigögn:
Fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. 7. nóvember 2024
Fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. 10. desember 2024
7. Fundargerð stjórnar Eignasjóðs 19. desember 2024 (2024010212)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eignasjóðs.
Fylgigögn:
Fundargerð 15. fundar stjórnar eignasjóðs 19. desember 2024
8. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 19. desember 2024 (2024030003)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarnar Suðurnesja.
Fylgigögn:
Fundargerð 89. stjórnarfundur
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:20. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 7. janúar 2025.