1507. fundur

13.03.2025 08:15

1507. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn á Tjarnargötu 12, 13. mars 2025, kl. 08:15

Viðstaddir: Birgir Már Bragason, Bjarni Páll Tryggvason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Margrét A. Sanders og Sigurrós Antonsdóttir.

Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Guðný Birna Guðmundsdóttir boðaði forföll Sigurrós Antonsdóttir sat fundinn í hennar stað.
Valgerður Björk Pálsdóttir boðaði forföll Birgir Már Bragason sat fundinn í hennar stað.

1. Mælaborð 2024 (2025030170)

Lagðar fram samantektir sviða Reykjanesbæjar út frá mælaborðum.

2. Samstarfsverkefni um eflingu byggðar í dreifbýli (2025030110)

Lagt fram bréf frá samtökunum Landsbyggðin lifi.

Fylgigögn:

Bréf til sveitarfélaga

3. Útvistun á ræstingu og þrifum - upplýsingabeiðni frá ASÍ, SGS og Eflingu (2025030104)

Lögð fram upplýsingabeiðni á grundvelli upplýsingalaga nr. 140/2012 þar sem óskað er eftir upplýsingum um útvistun sveitarfélagsins á ræstinga- og þrifaverkefnum.

4. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 20. mars 2025 (2025020304)

Minnt er á skráningu landsþingsfulltrúa á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.

5. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 7. og 28. febrúar 2025 (2025020043)

Lagðar fram til upplýsinga fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fylgigögn:

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 964
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 971

6. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2025030101)

Tillaga til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 101. mál

Með því að smella hér opnast þingsályktunartillagan.

Umsagnarmál lagt fram.


______________________________
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 8:55. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 18. mars 2025.