184. fundur

06.08.2024 11:00

184. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 6. ágúst 2024 kl. 11:00

Viðstaddir: Friðþjófur Helgi Karlsson formaður, Davíð Már Gunnarsson, Hjördís Baldursdóttir, Marta Sigurðardóttir og Sindri Kristinn Ólafsson.

Að auki sátu fundinn Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Birgir Már Bragason boðaði forföll og sat Davíð Már Gunnarsson fundinn í hans stað.

1. Málefni fv. Glímudeildar UMFN/Sleipnis (2023110166)

Það er samdóma álit íþrótta- og tómstundaráðs að fv. Glímudeild UMFN/íþróttafélagið Sleipnir hafi ekki lengur aðstöðu í Bardagahöll Reykjanesbæjar að Smiðjuvöllum 5.

Í ljósi þess að ekki er um formlegt íþróttafélag að ræða, hvorki undir starfsemi Íþróttabandalags Reykjanesbæjar né Ungmennafélagsins Njarðvíkur, ber íþrótta- og tómstundaráði ekki nein lagaleg skylda að hýsa áhugamannafélag.

Reykjanesbær hefur auk þess fengið lögfræðiálit frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þarsem eftirfarandi kemur meðal annars fram:

„Hvað önnur félög varðar, s.s. áhugamannafélög, þá eru engin lagaákvæði sem kveða á um skyldu sveitarfélaga til að útvega þeim húsnæði. Sveitarfélögum er það hins vegar heimilt svo fremi sem það skerði ekki getu sveitarfélagsins til að sinna Iögskyldum verkefnum."

Iðkendum í bardagahöllinni hefur fjölgað umtalsvert, ekki síst eftir að börn og ungmenni frá Grindavík, sem nú eru búsett í Reykjanesbæ, hófu æfingar með íþróttafélagi sem hefur aðstöðu í húsinu.

Ítrekaðar tilraunir íþrótta- og tómstundaráðs til að koma á starfsfriði hafa ekki tekist og þ.a.l. sér íþrótta- og tómstundaráð enga aðra kosti í stöðunni en að upplýsa að fv. Glímudeild UMFN/íþróttafélagið Sleipnir hafi ekki lengur aðstöðu í Bardagahöll Reykjanesbæjar. Verði ákvörðun þessi staðfest af bæjarráði Reykjanesbæjar er óskað eftir að fv. Glímudeild UMFN/íþróttafélagið Sleipnir fjarlægi búnað sinn úr bardagahöllinni innan fjögurra vikna frá fundi bæjarráðs.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:33. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarráðs 8. ágúst 2024.