80 fyrirtæki og 1800 íbúar komin á Ásbrú
-sem fyrir aðeins 5 árum var draugabær.
Yfir 80 fyrirtæki og stofnanir hafa sest að með starfsemi á því svæði sem áður tilheyrði bandaríska varnarliðinu en tilheyrir nú Ásbrú í Reykjanesbæ. Fyrir aðeins fimm árum síðan bjó þar ekki nokkur maður eftir brotthvarf varnarliðsins og örfá fyrirtæki sátu aðgerðarlaus eftir. Nú búa nær 1800 íbúar í þessu hverfi Reykjanesbæjar.
Þetta kom fram á íbúafundi með bæjarstjóranum í Reykjanesbæ í Njarðvík s.l. mánudag. Fyrir aðeins fimm árum síðan var svæðið draugabær eftir að herinn hvarf á braut og umræða sumra stjórnmálaafla var að réttast væri að jafna byggingar svæðisins við jörðu.
Í stað þess voru byggingar nýttar til tekjuöflunar, mest í þágu uppbyggingar svæðisins. Nú búa um 1700 íbúar á svæðinu, mest námsmannafjölskyldur, sem er fleira en býr í nágrannabæjum eins og Garði, Vogum eða Sandgerði.
Á íbúafundum með Árna Sigfússyni bæjarstjóra sem haldnir hafa verið í Reykjanesbæ að undanförnu hefur komið fram að mjög mikil nýsköpun og frumkvöðlastarf á sér stað að Ásbrú. Kadeco, þróunarfélagið sem sér um svæðið, stofnaði snemma í vinnu sinni til frumkvöðlasetra þar og hefur hlúð að uppbyggingu slíkra verkefna. Þar munar þó mestu um Keili, samfélag vísinda, fræða og atvinnulífs, sem var stofnað í kjölfar brotthvarfs Varnarliðsins, að frumkvæði Reykjanesbæjar og Kadeco.
Flóra fyrirtækja og stofnana spannar vítt svið. Mikið er um lítil sprotafyrirtæki, sem Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, hlúir að í frumkvöðlasetrinu Eldey. Þar starfa hugvitsmenn og hönnuðir á sviði öryggisbúnaðar, myndbúnaðar, fata- og listhönnunar ofl. ofl. Stærri fyrirtæki hafa sest að eins og rafræna gagnaverið Verne Global, Gagnavarslan, sjávarútvegstæknifyrirtæki eins og Málmey, bílaleigur, heilsuhótel, auk annarra heilsutengdra og flugtengdra verkefna. Innviðir samfélagsins að Ásbrú hafa verið styrktir með tveimur leikskólum og einum grunnskóla á vegum Reykjanesbæjar, auk lítils útibús löggæslunnar. Innileikjagarður fyrir börn er starfræktur ás svæðinu, sem nú stendur til að stækka. Mikið gróðurræktarátak er framundan að Ásbrú.