Ástrós Brynjarsdóttir, var í dag valin Íþróttamaður Reykjanesbæjar 2013. Ástrós var valin taekwondo kona Íslands árið 2013 og árið 2012. Hún hefur sýnt fram á langtum besta árangur sem nokkur íslensk taekwondo kona hefur náð á einu ári frá upphafi.
Á árinu 2013 var hún valin besta keppandinn á öllum bikarmótunum sem voru haldin, á Íslandsmótinu í tækni og á Reykjavik International games sem er alþjóðlegt mót.
Ástrós vann til 19 gullverðlauna á árinu, flestir þeirra í fullorðinsflokki þrátt fyrir að vera ung að árum, en hún er aðeins 14 ára gömul.
Samtals Íslandsmeistaratitlar – 6 (2 af þeim voru liðstitlar)
Samtals bikarmeistarasigrar – 8 (1 af þeim var liðssigur)
Samtals viðurkenningar fyrir besta árangur mótsins – 8
Ástrós varð Norðurlandameistari á árinu, en hún keppni auk þess á tvennum Evrópumótum og þremur alþjóðlegum mótum.
Hún hefur æft með Ólympíukeppendum og heimsklasa þjálfurum, vakið athygli fyrir góða tækni hvar sem hún fer og sigrað hvert mótið á fætur öðrum. Það er augljóst að hér er á ferðinni ein efnilegasta íþróttakona landsins.
Árangur ársins 2013
- Reykjavik International games – Gull í bardaga
- Reykjavik International games – Gull í paratækni
- Reykjavik International games – Gull í hópatækni
- Reykjavik International games – Silfur í einstaklingstækni
- Reykjavik International games – Valin besti kvenkeppandi leikanna í taekwondo
- Bikarmót 2 – Gull í bardaga
- Bikarmót 2 – Gull í einstaklingstækni
- Bikarmót 2 – Valin besti keppandi kvenna í tækni
- Bikarmót 2 Valin besti keppandi kvenna í samanlögðum árangri
- Evrópumót í tækni einstaklings – 9. Sæti
- Evrópumót í tækni para – 10. Sæti
- Spanish Open í einstaklingstækni – 7. Sæti
- Spanish Open í paratækni – 4. Sæti
- Íslandsmót í bardaga – Gull í -47 kg flokki
- Íslandsmót í bardaga – Sigraði liðakeppnina fullorðna
- Bikarmót 3 – Gull í bardaga
- Bikarmót 3 - Gull í tækni
- Bikarmót 3 – Besti keppandi kvenna í tækni
- Bikarmót 3 - Besti keppandi kvenna í samanlögðum árangri
- Norðurlandamót – Gull í bardaga
- Norðurlandamót – Silfur í tækni
- Landsmót UMFÍ – Gull í tækni
- Evrópumót í bardaga – 5. sæti af 27 keppendum, tapaði naumlega fyrir stúlkunni sem varð í 2. Sæti
- Íslandsmót í tækni – Gull í einstaklingstækni svört belti
- Íslandsmót í tækni – Gull í paratækni fullorðna svört belti
- Íslandsmót í tækni – Gull í hópatækni fullorðna svört belti
- Íslandsmót í tækni – Valin keppandi mótsins hjá konum
- Íslandsmót í tækni – vann liðakeppnina
- Scottish Open – Gull í bardaga
- Scottish Open – Gull í einstaklingstækni
- Scottish Open – Gull í paratækni
- Bikarmót 1 – Gull í bardaga flokki 1
- Bikarmót 1 – Gull í bardaga flokki 2
- Bikarmót 1 – Gull í tækni
- Bikarmót 1 – Valin kvenkeppandi mótsins