Bókun lögð fram á bæjarstjórnarfundi þriðjudaginn 1. desember 2020
Nú þykir ljóst að afleiðingar Covid 19 verða mun alvarlegri og langvinnari en búist var við. Því er ljóst að margir þurfa að treysta á öryggisnet ríkis og sveitarfélaga sér til lífsviðurværis. Á Suðurnesjum var atvinnuleysis farið að gæta áður en faraldurinn skall á og er staðan nú grafalvarleg.
Fyrir ári síðan fengu 195 einstaklingar fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ en þeim hefur fjölgað um 63,6% og eru nú 319. Það er því nauðsynlegt að bregðast við þessari miklu aukningu og sporna gegn henni með einhverjum hætti. Upphæð fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga er í öllum tilfellum lægri en grunnatvinnuleysisbætur og því erfitt fyrir fólk að þurfa að treysta á þær sér til framfærslu.
Mikið atvinnuleysi kemur verulega niður á tekjustofnum sveitarfélaga og gerir þeim erfitt fyrir að mæta þeim útgjaldaauka sem fylgir greiðslu fjárhagsaðstoðar.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar því á Ríkisstjórn Íslands að lengja tímabil atvinnuleysisbóta tímabundið til að bregðast við alvarlegum efnahagslegum afleiðingum kórónaveirufaraldursins.