Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins miðvikudaginn 6. febrúar. Þetta er í tólfta sinn sem haldið er upp á daginn. Sjötti febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Tilgangur Dags leikskólans er að vekja athygli á hlutverki leikskóla og starfi leikskólakennara. Það er meðal annars gert með því að veita hvatningarverðlaunin Orðsporið. Það verður nú gert í sjötta sinn á hátíðardagskrá í leikskólanum Brákarborg í Reykjavík. Þá verða veitt verðlaun í ritlistarkeppninni Að yrkja á íslensku sem haldin er nú í fyrsta sinn.
Leikskólarnir í Reykjanesbæ ætla allir að halda upp á daginn með sínu lagi. Reykjanesbær óskar starfsfólki sínu í leikskólum til hamingju með Dag leikskólanna og hvetur það til þess að gera sér dagamun í tilefni dagsins.