Fasteignagjöld 2025

Álagningu fasteignagjalda 2025 er lokið og álagningarseðlar hafa verið sendir til birtingar á island.is.

Gjalddagar gjalda yfir 25.000 kr. eru 10 talsins, fyrsta dag hvers mánaðar frá og með 1. febrúar. Gjalddagi gjalda undir 25.000 kr. er 1. febrúar. Eindagi er 30 dögum síðar og dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ef ekki er greitt innan þess tíma.

Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda birtast eingöngu sem kröfur í netbanka en greiðendur 76 ára og eldri fá áfram senda seðla í pósti. Einnig er hægt að fá greiðsluseðla senda á netfang. Þeir sem eiga rétt á tekjutengdum afslætti vegna elli- og/eða örorkulífeyris þurfa ekki að sækja um hann sérstaklega en allar slíkar upplýsingar eru sóttar rafrænt til ríkisskattstjóra.

Sérstök athygli er vakin á því að geymslubil á iðnaðarlóðum bera sama skatt og atvinnuhúsnæði.