Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut 27. maí

Mánudaginn 27.maí er stefnt á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut, á milli gatnamóta við Voagaveg og Grindavíkurveg. Kaflinn er um 2,5 km að lengd og hraði verður tekinn niður framhjá framkvæmdasvæði. Viðeigandi merkingar verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 5:00 til kl. 21:00.

Nánari útskýringar á framkvæmdasvæði má sjá á mynd hér fyrir neðan.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.