Framkvæmdir við Njarðarbraut 27.-30. maí

Vegna framkvæmda á Njarðarbraut við hús nr. 5 þarf að grafa skurð út í miðri akrein til að tengja vatnsveitu. Það gæti komið til umferðartafa í kringum framkvæmdarsvæðið vegna þrenginga. Framkvæmdartími er áætlaður frá og með deginum í dag 27.5.24 til fimmtudagsins 30.5.24.

Reynt verður að halda svæðinu opnu eins og kostur er.

Nánari útskýringar á framkvæmdasvæði má sjá á myndinni hér fyrir neðan.