Gestir og skólabörn í Stapaskóla 2021
Nú hefst skólastarf senn á ný í leik- og grunnskólum eftir jólafrí. Í ljósi þess hve mörg Covid-19 smit eru í samfélaginu okkar, þá vil ég hvetja ykkur til að huga vel að öllum sóttvörnum og árétta að senda ekki börnin ykkar í skólann ef þau eru með einkenni. Þau ykkar sem hafa lagt land undir fót hugi enn fremur vel að þeim reglum sem gilda við landamærin á Íslandi.
Ákveðið hefur verið að fyrsti skóladagur eftir jólafrí (ýmist 3. eða 4. janúar hjá grunnskólum) verði skipulagsdagur í grunn- og leikskólum, í frístundastarfi og tónlistarskólanum. Þetta er gert til að gefa starfsfólki tækifæri til að laga starfsemina að aðstæðum í samfélaginu og gildandi reglugerð. Miðað við hraða á útbreiðslu Covid-19 má búast við að röskun geti orðið á starfsemi leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila og tónlistarskóla á komandi dögum, en eins og áður verður reynt að leysa forföll eins og hægt er.
Eins og reynslan hefur sýnt okkur, þá hefur það mikil áhrif á skólastarf þegar upp koma smit hjá nemendum eða starfsfólki í skólum. Í kjölfarið þurfa oft mörg börn og fjölskyldur þeirra að fara í sóttkví sem er íþyngjandi aðgerð sem raskar daglegu lífi. Hægt er að minnka líkurnar á því með því að fylgja leiðbeiningum og tilmælum sóttvarnalæknis og heilbrigðisyfirvalda í hvítvetna og gæta ítrustu sóttvarna.
Með ósk um gleðilega hátíð og farsælt nýtt ár.
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.
Helgi Arnarson sviðsstjóri fræðslusviðs.