Frá uppsetningu verksins á Reykjanesi en þar má sjá listamanninn ásamt aðstoðarmönnum.
Reykjanesbær tekur þátt í alþjóðlegu verkefni "The Lost Bird Project" á ljósanótt sem er uppsetning á bronsstyttu af geirfuglinum sem sett hefur verið upp við Valahnjúk á Reykjanesi og verður afhjúpuð kl. 14:00 á föstudag.
Listamaðurinn Todd McGrain hefur í nokkur ár unnið að gerð skúlptúra af útdauðum fuglum m.a. geirfuglinum og vill þannig vekja athygli samtímans á umhverfisvernd og ást á náttúrunni. Hann vinnur fuglana í brons og er hverjum fugli ætlaður staður víðs vegar um heiminn, allt eftir því hvar þeirra upprunalegu heimkynni voru. Í tilefni þess að talið er að síðasti geirfuglinn hafi verið drepinn í Eldey 3. júní í 1844 hefur verið ákveðið að styttan af geirfuglinum verði sett upp neðan við Valahnjúk á Reykjanesi og mun fuglinn horfa út til Eldeyjar og minna okkur um leið á sameiginlega ábyrgð allra þjóða á náttúru og umhverfisvernd.
