Gjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa

Embætti skipulags- og byggingarfulltrúa hafa gert breytingar á gjaldskrá. Veigamesta breytingin er að gjaldskrá er nú sameinuð og hefur starfsfólk lagt í gríðarmikla vinnu við að samræma uppbyggingu á gjaldliðum gjaldskrár við gjaldskrár nærliggjandi sveitarfélaga.

Gjaldskrá er hlutfallsprósenta af verðgrunni fyrir gatnagerðargjöld, sbr. útreikning Hagstofu Íslands. Gjaldtakan byggð á heimild í lögum um mannvirki nr. 160/2010, IX. kafli, gjaldtaka og leyfisgjöld, greinar 50, 51 og 53, og skv. Skipulagslögum 123/2010, V. kafli, gjaldtaka vegna skipulags og framkvæmdaleyfa, greinar 18, 19 og 20.

Gjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa var samþykkt af bæjarstjórn Reykjanesbæjar 17. desember 2024 og auglýst í B-tíðindum Stjórnatíðinda 21. janúar 2025.