Íbúar hvattir til að fylgjast með loftgæðum

Um hádegi á morgun mánudag er gert ráð fyrir að vindátt snúist og mengun frá gosinu leggi yfir Reykjanesbæ. Þá hafa gróðureldar einnig kviknað og jafnframt búast við brunalykt af þeim sökum. Við hvetjum alla til að fylgjast vel með loftgæðum inni á loftgaedi.is á meðan á gosinu stendur og skoða styrk brennisteinsdíoxíðs SO2. Athugið að ekki allir mælar á svæðinu mæla styrk SO2. Inni á loftgaedi.is er einnig að finna ráðleggingar um viðbrögð við mismunandi styrk mengunar : https://ust.is/library/Myndir/eldgos_vidbrogd.png