Frá jólagjafahanaverksmarkaði
Jólagjafahandverksmarkaður verður haldinn í Svarta Pakkhúsinu í Reykjanesbæ laugardaginn 4.desember milli klukkan 13 til 17.
Eftir frábærar viðtökur á jólagjafamarkaði okkar þann 6.nóvember höfum við ákveðið að halda aftur markað 4.desember. Í fremri sal höfum við fengið til liðs við okkur Ásthildi grasalæknir, Bergþóru blómaskreytir, Ólaf með náttúrusápur, Kvenfélagið með jólakort og fleiri og fleiri til að kynna sýnar vörur.
Í okkar sívinsæla innri sal verður að venju frábært úrval af handunnum gjafavörum á góðu verði og í tilefni dagsins verðum við með 10% afslátt af öllum vörum í innri sal. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla að koma að skoða fjölbreytt íslenskt handverk og versla jólagjafir.
Þess má geta að þeir sem versla við okkur bíðst að skrá sig í lukkupott Svarta Pakkhússins þar sem þrír heppnir vinningshafar verða dregnir út 4. desember og fá þeir glæsilega vinninga.
Heitt verður á könnunni og piparkökur í boði hússins. Við hlökkum til að sjá sem flesta líta við og njóta jólastemningarinnar með
okkur.
Svarta Pakkhúsið