Keilir, Kaffitár og Vatnaveröld - sundmiðstöð hlutu viðurkenningu sem fjölskylduvæn fyrirtæki á Degi um málefni fjölskyldunnar sem haldinn var í Íþróttaakademíunni laugardaginn 27. febrúar sl.
Einnig voru veittar viðurkenningar til dagforeldra sem starfað hafa í 10 ár í Reykjanesbæ. Viðurkenninguna hlutu Vilfríður Þorsteinsdóttir, Guðný Sigríður Jónsdóttir og Guðrún Þórhildur Ævarsdóttir.
Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar veitir árlega viðurkenningar til fjölskylduvænna fyrirtækja í Reykjanesbæ en markmiðið er að hvetja stjórnendur fyrirtækja til þess að setja sér fjölskyldustefnu. Þetta er í níunda sinn sem viðurkenningin er veitt og hafa fjölmörg fyrirtæki í Reykjanesbæ þegar hlotið nafnbótina "fjölskylduvænt fyrirtæki".