Ljósanótt handan við hornið

Í dag voru undirritaðir styrktarsamningar við aðalstyrktaraðila Ljósanætur en hátíðin verður haldin í 23. sinn dagana 5. - 8. september.
Um það bil 70 fyrirtæki styrkja Ljósanótt í ár með fjárhagslegum stuðningi og/eða öðru framlagi. Það er ljóst að án aðkomu þeirra væri Ljósanótt ekki haldin með jafn kröftugum hætti og raunin er.Helstu bakhjarlar Ljósanætur eru sterkir aðilar úr atvinnulífi svæðisins og sagði Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri við undirritun samninganna það vera ómetanlegt þegar fyrirtæki á svæðinu láti sig samfélagið varða enda mikill fjöldi íbúa sem starfi hjá þeim. Hann sagðist sannfærður um að sýnilegur stuðningur fyrirtækjanna auki traust starfsfólks til atvinnurekenda sinna og sagði það ánægjulegt þegar allir leggi sitt á vogarskálarnar til að vel megi takast til.

Ljósberar Ljósanætur
Aðalstyrktaraðilar Ljósanætur 2024, svokallaðir Ljósberar, eru Landsbankinn, KEF Keflavíkurflugvöllur, Skólamatur, BUS4U, Bakað og Málningarþjónustan JRJ. Með stuðningi sínum taka fyrirtækin þátt í því að auðga bæjarlífið og styrkja um leið þá þætti sem eru órjúfanlegur hluti þess að skapa starfsmönnum þeirra og viðskiptavinum eftirsóknarvert umhverfi til að lifa og starfa í. 

Dagskráin er óðum að taka á sig mynd og hana er að finna á vefnum Ljósanótt.is og þar má einnig sjá yfirlit yfir alla styrktaraðila hátíðarinnar.

Ljósanótt er menningar- og fjölskylduhátíð og dregur nafn sitt af lýsingu á sjávarhömrum „Bergsins“ sem blasir við af hátíðarsvæðinu. Lýsingin eða ljósaverkið var unnið eftir hugmynd Steinþórs Jónssonar fyrsta formanns Ljósanæturnefndar, og afhjúpað á fyrstu Ljósanóttinni árið 2000. Allar götur síðan hefur verið kveikt á ljósunum þegar hátíðin nær hápunkti sínum með stórtónleikum og flugeldasýningu á laugardagskvöldi Ljósanætur.

Afmælisáhersla á Ljósanótt
Á Ljósanótt er lögð áhersla á fjölbreyttar uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags. Menningaráhersla hefur verið aðalsmerki hátíðarinnar frá upphafi og hafa tónlist og myndlist jafnan verið þar í fararbroddi enda bærinn annálaður tónlistarbær. Í ár fögnum við einnig 30 ára afmæli Reykjanesbæjarog ber hátíðin merki þess á ýmsan hátt. Sérstök áhersla verður á tónlistararf svæðisins og verður honum m.a. gerð skil með veglegri tónleikadagskrá á stórtónleikum Ljósanætur og víðar.