Malbikunarframkvæmdir á Hafnargötu 12. september

Á fimmtudaginn 12. september er stefnt að fræsa og malbika Hafnargötu.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Verktími framkvæmda verður frá 09:00 – 17:00

 Hafnargötu verður lokað milli Víkurbrautar og Vatnsnesvegar. Hjáleiðir eru um Víkurbraut og Vatnsnesveg.

Yfirverkstjóri malbikunar er Ársæll s: 891-7446
Verkstjóri lokunar er Ingvi s: 660-1921

Nánari útskýringar á framkvæmdasvæði má sjá á myndunum hér fyrir neðan.