Möguleg gasmengun í dag 12. júní

Vindátt verður með þeim hætti í dag og næstu daga að búast má við gasmengun frá eldstöðinni við Sundhnjúkagíga.

Á vef Veðurstofunnar er fólk hvatt til að fylgjast vel með stöðu loftgæða þar sem hætta er á brennisteinsmengun og fylgja ráðleggingum Umhverfisstofnunar ef mengun er til staðar.

 

Athugið að ekki allir mælar inni á loftgaedi.is mæla mengunina frá gosstöðvunum, aðeins þeir sem sýna SO2 / brennisteinsdíoxíð