Disney perlur nemenda í Myllubakkaskóla en tónleikarnir voru liður í fjáröflun fyrir tækjabúnað skólans vegna söngleikja.
Foreldrar, starfsmenn Reykjanesbæjar, sveitarstjórn, fræðsluráð, gamlir nemendur sem og aðrir bæjarbúar eru boðnir velkomnir á opinn dag í Myllubakkaskóla í tilefni af alþjóðlegum degi kennara 5. október nk.
Skólinn verður opinn frá kl. 8:10 til 14:00 og verður heitt kaffi á könnunni.
Nemendur munu veita leiðsögn um skólann, myndaalbúm verða til sýnis sem og ýmis verkefni nemenda. Einnig verður boðið upp á myndasýningu (slideshow).
Kennsla verður með hefðbundnum hætti eg allar kennslustofur verða opnar.
Stjórnendur, kennarar og annað starfsfólk Myllubakkaskóla vonast til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta.