Skólasetning grunnskóla

Nú líður senn að því að nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar hefji störf. Fimmtudaginn 22. ágúst og föstudaginn 23. ágúst eru skólasetningar en nánari upplýsingar fyrir hvern skóla eru birtar á heimasíðum þeirra. Um 260 fyrstu bekkingar eru nú að hefja grunnskólanám og taka sín fyrstu skref inn í grunnskólana okkar.

Alls eru nemendur í grunnskólunum okkar um 2815 sem er fjölgun um 167 nemendur frá skólabyrjun fyrir ári síðan þegar þeir voru 2648.

Flestum nemendum og foreldrum finnst gott að komast aftur í sínar venjur hausts og vetrar þó erfitt geti reynst að kveðja sumarið. Framundan eru arkandi börn um allan bæ með skólatöskur á bakinu og því eru ökumenn beðnir um að sýna sérstaka aðgát í nágrenni skóla.