Föstudaginn 17. apríl opnar Vinnuskóli Reykjanesbæjar fyrir umsóknir nemenda sem fæddir eru árin 2000, 1999 og 1998. Vakin er athygli á því að nemendur fæddir 2001 eiga ekki kost á vinnu sumarið 2015.
Vinnuskólinn er fluttur í Reykjaneshöllina og mæta nemendur því þangað á fyrsta degi hvers tímabils. Þar er raðað niður í hópa og nemendur hitta flokkstjórann sinn. Frá Reykjaneshöllinni fara krakkarnir með sínum hópi í sitt skólahverfi til vinnu og munu eftir það hittast við þá starfsstöð.
Tímabilin 2015 eru eftirfarandi:
9. – 10. bekkur
Unnið er 4 daga vikunnar – ekki er unnið á föstudögum
Mánudag til fimmtudag frá 08.00 – 16.00
Hádegismatur frá 12:00-13:00
Tímabil A hefst 10. júní og lýkur 8. júlí.
Ekki unnið neina föstudaga!
Tímabil B hefst 13. júlí og lýkur 7. ágúst.
Unnið föstudaginn 7. ágúst!
17. ára hópur
Í vinnuskólanum er nú í fyrsta sinn 17 ára hópur. Takmarkaður fjöldi kemst í þennan hóp en þessir nemendur eiga kost á vinnu í sex vikur á átta vikna tímabili. Þessi hópur var formlega stofnaður til að koma til móts við þennan aldurshóp því ljóst þykir að hann á mjög erfitt með að finna sér sumarvinnu. Hópurinn mun sinna hefðbundnum umhverfis- og garðyrkjustörfum, auk tilfallandi verkefna.
Unnið er 4 daga vikunnar – ekki er unnið á föstudögum
Mánudag til fimmtudag frá 08.00 – 16.00
Hádegismatur frá 12:00-13:00
Okkur langar að vekja sérstaklega athygli á því að búið er að opna upplýsingasíðu fyrir vinnuskólann sem er einnig tengd við Facebook síðu vinnuskólans. Slóðin er www.vinnuskolinn.wordpress.com og www.facebook.com/vinnuskolirnb og hvetjum við bæði nemendur og foreldra til að fylgjast vel með. Þar munum við birta allar nýjar upplýsingar, myndir og allt annað skemmtilegt sem okkur dettur í hug.
Sumar kveðja Berglind Ásgeirsdóttir
yfirmaður vinnuskóla