Tímabundin breyting akstursleiðar strætó um Skólaveg

Á Skólavegi, frá Sóltúni að Hringbraut, er allur innakstur bannaður nema fyrir Strætó og íbúa Skólavegar ofan Hringbrautar frá 6. júní til verkloka sem eru áætluð í lok júlí. 

Þessi breyting er gerð vegna framkvæmda við Skólaveg frá Sólvallagötu að Hringbraut. Þetta er gert til að Strætó geti haldið leið sinni nær óskertri.