Tímamótasamkomulag um uppbyggingu á Ásbrú

Samningur milli Reykjanesbæjar, Kadeco og ríkisins um uppbyggingu á Ásbrú var undirritaður í dag. Samningurinn felur meðal annars í sér að byggðar verða 800 íbúðir á Ásbrú auk uppbyggingar samfélagslegra innviða, almenningsrýma og nýrra bygginga undir þjónustu fyrir íbúa.

Á Ásbrú er fjölbreytt samfélag sem mun styrkjast enn frekar með uppbyggingu nýrra íbúða og innviða. Markmið samningsins er meðal annars að mæta aukinni eftirspurn eftir húsnæði, skapa fyrirsjáanleika og hefja þéttingu og þróun byggðar á Ásbrú.

Samkomulagið var undirritað af Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra, Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, starfandi bæjarstjóra í Reykjanesbæ og Pálma Frey Randverssyni, framkvæmdastjóra Kadeco.

„Við fögnum þeim samningi sem var undirritaður hér í dag en hann markar tímamót í þróun Ásbrúarhverfisins til framtíðar. Við höfum lagt áherslu á mikilvægi samvinnu ríkisins og sveitarfélagsins þegar mótuð er sameiginleg framtíðarsýn fyrir hverfið og hér erum við formlega lögð af stað í þá vegferð. Á Ásbrú eru gríðarleg tækifæri og við hlökkum mikið til að sjá hverfið halda áfram að vaxa og blómstra,“ segir Halldóra Fríða starfandi bæjarstjóri.

Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco segir að uppbyggingin á Ásbrú sé bæði spennandi og þarft verkefni. „Við ætlum að hraða upp­bygg­ingu og mæta vönt­un á íbúðamarkaði og það er mikið fagnaðarefni að við höfum skrifað undir samkomulag um næstu skref. Á svæðinu er allt til staðar sem íbúðahverfi þarf til að þar haldi áfram að byggjast upp blómleg byggð og með þessari uppbyggingu verður hægt að leggja meira í samfélagslega innviði. Með því að nýta núverandi innviði svæðisins getum við hraðað framkvæmdum og komið til móts við íbúðaskort sem er ákjósanlegt fyrir alla aðila.“

Samningurinn nú kemur í kjölfar vel heppnaðs útboðs á 150 íbúða uppbyggingu á svokölluðum Suðurbrautarreit á Ásbrú en þar verður byggt lágreist, gönguvænt og barnvænt hverfi í hjarta Ásbrúar.