Umhverfisvaktin 24.-28. febrúar

Hér getur þú fylgst með framvindu framkvæmda í bænum og fengið nýjustu upplýsingar. Um lifandi gögn er að ræða sem breytast reglulega og gefa góða mynd af því sem er í gangi í bænum hverju sinni.

Sólvallagata lokuð 26.–27. febrúar vegna framkvæmda

Vegna tengingar á frárennsli frá Myllubakkaskóla verður Sólvallagata lokuð á milli Norðurtúns og Suðurtúns frá miðvikudeginum 26. febrúar til lok dags fimmtudaginn 27. febrúar.

Við þökkum vegfarendur fyrir skilninginn á meðan unnið er að framkvæmdunum.

Tjarnabraut lokuð vegna framkvæmda 26. febrúar – 5. mars

Vegna tengingar á vatnsveitu við Tjarnabraut 26 og 30 verður gatan lokuð fyrir umferð frá þriðjudeginum 26. febrúar og fram á miðvikudag 5. mars. Hjáleið verður merkt í gegnum Spóatjörn, Svölutjörn og Urðarbraut.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir skilninginn á meðan framkvæmdir standa yfir.

Umhverfisvaktin verður uppfærð eins oft og unnt er yfir vikuna, en henni er deilt vikulega eða eins og nauðsynlegt er, hér á síðunni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar .