Vegaframkvæmdir á Reykjanesbraut 13. maí

Mánudaginn 13.maí er stefnt á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut, frá Vatnsleysustrandarvegi til vesturs. Kaflinn er um 2,2 km að lengd og hraði verður tekinn niður framhjá framkvæmdasvæði. Viðeigandi merkingar verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani.

Ábyrgðarmaður veghaldara er Ólafur sími:845 0045
Ábyrgðarmaður verktaka er Halldór sími:660 1916

Áætlaður verktími er frá kl 05:00 til 19:00

Nánari útskýringar á framkvæmdasvæði má sjá á myndunum hér fyrir neðan.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.