Barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ 28.apríl – 8. maí
BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ er á dagskrá dagana 28. apríl til 8. maí nk. Á hátíðinni eru börn, ungmenni og fjölskyldur settar í forgang með fjölbreyttum og skemmtilegum hætti. Markmið hátíðarinnar eru m.a. þau að:
- Að auka lífsgæði og vellíðan barna og íbúa Reykjanesbæjar
- Að skapa vettvang fyrir börn og fjölskyldur til virkrar þátttöku í samfélaginu
Gerum þetta saman!
Allir þeir sem luma á góðum hugmyndum að verkefnum eða ábendingum fyrir BAUNina eru tvímælalaust hvattir til að setja sig í samband á baun@reykjanesbaer.is eða á Facebooksíðu Baunar fyrir 15.mars og koma þeim á framfæri. Möguleiki er á aðstoð við fjármögnun á góðum hugmyndum/verkefnum sem falla að markmiðum hátíðarinnar og stefnu Reykjanesbæjar.
Hverjir geta tekið þátt?
Allir sem hafa aðkomu að málefnum barna á einn eða annan þátt eru hvattir til að flykkja sér undir merki BAUNarinnar og vera með. Stofnanir Reykjanesbæjar eru þátttakendur, ýmsir menningar-, íþrótta- og tómstundahópar einnig og sömuleiðis eru fyrirtæki sem ætla að hoppa á vagninn og beina sjónum að börnum og fjölskyldum þeirra á þessu tímabili.
Meðal verkefna sem eru í undirbúningi er BAUNabréfið sem sló rækilega í gegn hjá börnunum í fyrra, Listahátíð barna í Duus Safnahúsum, Skessuskokk, fjölskyldudagur í Fjörheimum og ýmislegt fleira sem á eftir að líta dagsins ljós. Endilega sláist í hópinn.