Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar
Megintilgangur heimanáms er að þjálfa færni sem kennarinn er búinn að kenna á skólatíma. Þetta er augljósast á fyrstu árum skólagöngu þegar verið er að kenna lestur, skrift og reikning. Barn sem ekki fær viðeigandi þjálfun í lestri, skrift og reikningi, mun ekki ná góðum tökum á því sem því er ætlað að kunna.
Barn sem vinnur ekki heimanám er líka líklegt til að trufla kennslu og skemma fyrir sjálfum sér og öðrum. Ef barnið nær ekki tökum á undirstöðunni dregst það aftur úr í námi og mun eiga mjög erfitt með að tileinka sér það sem kennt er á mið og unglingastigi. Heimanámið er því gríðarlega mikilvægt. Með því að ná góðum tökum á heimanáminu og sinna því vel alla grunnskólagönguna tryggirðu að barnið sé vel þjálfað í því sem það þarf að kunna, og þannig bætirðu námsárangur barnsins. En hvernig eykur maður líkurnar á því að heimanámið gangi vel fyrir sig?
Þjálfun er aðalatriðið. Mundu að megintilgangur heimanáms er að þjálfa. Almennt gildir um þjálfun að betri árangur næst ef þjálfuninni er dreift yfir á marga daga, fremur en að barnið vinni alla heimavinnuna í einum rykk, til dæmis á laugardegi. Þetta er sérstaklega mikilvægt í grunnfærni eins og lestri, skrift og stærðfræði þar sem barnið ætti að lesa, skrifa og reikna heima á hverjum degi, en tiltölulega stutt í senn. Það skilar bestum árangri.
Foreldrar kvarta oft undan því að þeir skilji ekki hvað barnið á að gera í heimanáminu. Þetta er sérstaklega algengt í stærðfræði. Oft stafar þetta af því að fyrir slysni hefur kennarinn sent heim heimanám sem hann er ekki búinn að kenna í skólanum. Ef þetta gerist er sjálfsagt að ræða málið af hreinskilni við kennarann.
Allir þreyttir. Mundu að þú og barnið þitt eruð að vinna heimavinnuna þegar þið er orðin þreytt eftir langan vinnudag . Þess vegna skaltu hafa vinnuloturnar hæfilega langar og hafa pásur á milli verka. Þú getur spjallað við barnið í pásunum og gert eitthvað skemmtilegt með því. Þá nær barnið að einbeita sér betur þegar það er að vinna heimanámið.
Saddur og sællegur. Gott ráð er að gefa barninu eitthvert snarl áður en hafist er handa. Flestum fellur illa að vinna á fastandi maga og barnið þitt er engin undantekning þar á.
Vinnuskipulagið. Gott er að byrja á einhverju einföldu, fara svo yfir í það sem er barninu erfiðara og ljúka síðan heimanáminu með léttari verkefnum. Þá gengur barninu betur.
Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar