691. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn í Merkinesi, Hljómahöll þann 18. febrúar 2025, kl. 17:00
Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir, Bjarni Páll Tryggvason, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Helga Jóhanna Oddsdóttir, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir, Sigurrós Antonsdóttir, Sverrir Bergmann Magnússon og Valgerður Björk Pálsdóttir. Í forsæti var Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Að auki sat fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Íris Eysteinsdóttir ritari.
1. Fundargerðir bæjarráðs 6. og 13. febrúar 2025 (2025010003)
Forseti las upp bókun meirihluta vegna fyrsta máls fundargerðar bæjarráðs frá 13. febrúar síðastliðnum Skammtímafjármögnun bæjarsjóðs (2024040272):
„Meirihluti Beinnar leiðar, Framsóknar og Samfylkingar leggur áherslu á ábyrga fjármálastjórn hér eftir sem hingað til.
Þann 13. febrúar síðastliðinn leitaði fjármálastjóri Reykjanesbæjar eftir heimild frá bæjarráði til að tryggja skammtímafjármögnun fyrir einn milljarð vegna tímabundins lausafjárvanda.
Skýringarnar fyrir þessari stöðu eru helst þær að Reykjanesbær hefur á undanförnum árum farið af stað með miklar og fjárfrekar fjárfestingar vegna mikillar fjölgunar íbúa en einnig vegna þess að við stöndum frammi fyrir umfangsmiklu viðhaldi á mörgum af okkar húsum sökum rakavandamála. Fjárfestingar Reykjanesbæjar fyrir árið 2024 telja tæpa sex milljarða en á árinu 2025 gerum við ráð fyrir fjárfestingum fyrir tvo milljarða sem áætlað er að þurfi ekki að fjármagna með lántöku.
Við höfum undanfarin ár verið að endurgera tvo grunnskóla sem voru hvað verst farnir af rakaskemmdum og erum langt komin með þá báða. Þessar framkvæmdir hafa reynst mjög dýrar þar sem við erum einnig að stækka báða skólana samhliða og kaupa inn nýjan búnað. Auk þessara tveggja skóla höfum við verið að sinna viðhaldi í öðrum leik- og grunnskólum í sveitarfélaginu því við viljum af öllum mætti koma í veg fyrir það að eins umfangsmiklar rakaskemmdir komist af stað í öðrum húsum okkar.
Auk þess erum við að reisa nýtt hjúkrunarheimili fyrir 80 íbúa sem við munum opna síðar á árinu en í þeirri framkvæmd greiðum við kostnaðinn í fyrstu og fáum síðar greitt frá ríkinu. Fjármálastjóri kynnti fyrir bæjarráði að sveitarfélagið á útistandandi reikninga frá ríkinu m.a. vegna uppbyggingar hjúkrunarheimilisins upp á 200 milljónir og vegna annarra samninga við ríkið um 120 milljónir.
Önnur atriði sem vert er að taka fram:
• Samhliða þeirri miklu íbúafjölgun sem hefur verið undanfarin ár höfum við endurgert Skólaveg 1 sem leikskólaútibú Tjarnarsels og erum að klára tvo nýja 120 barna leikskóla, annars vegar leikskólann Asparlaut í Keflavík og Drekadal í Innri-Njarðvík.
• Við ákváðum að flýta útskiptingu á gervigrasi í Reykjaneshöllinni þar sem fyrra gras var ekki talið vera öruggt fyrir iðkendur en þar var gert ráð fyrir kostnaði að upphæð 80-100 milljónir sem við greiðum núna í febrúar.
• Reykjanesbær, líkt og önnur sveitarfélög, eru að fást við talsverðan kostnað vegna veikinda starfsfólks. Á þetta bæði við um skammtíma- og langtímaveikindi en þessi kostnaður var um 200 milljónir fyrir árið 2024.
• Reykjanesbær greiddi einnig 103 milljónir í skólamáltíðir grunnskólabarna frá ágúst til desember en þetta er innan ákvæði kjarasamninga.
• Að lokum skal sagt að þessi mikli kostnaður er að koma til í lok árs á sama tíma og við vorum að klára íþróttamiðstöðina í Stapaskóla og fasteignagjöld eru ekki að koma inn sem tekjur, líkt og ávallt í desember og janúar.
Meirihlutinn hefur lagt áherslu á að áætla tekjur varlega í fjárhagsáætlunum síðustu ára þrátt fyrir nokkurn þrýsting um að gera það ekki. Það er nefnilega betra að eiga meira fjármagn seinni hluta árs í stað þess ofáætla tekjur og lenda svo í vandræðum og ná ekki endum saman.
Reykjanesbær er ekki í rekstrarlegum erfiðleikum en við erum að brúa bil þar sem við erum að sjá tímabundinn lausafjárskort. Það er ekki óalgengt að sveitarfélög leiti eftir tímabundnum lánalínum þegar uppvaxtarhraðinn er eins og hann er hjá okkur.
Það er mikilvægt að við öll gerum okkur grein fyrir því að stækkun sveitarfélaga kostar og aukin þjónusta kostar. Staða og rekstur sveitarfélagsins er góður því hér hefur verið vel haldið utan um fjármál undanfarin ár og það stendur ekki til að gera breytingar þar á.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir (S), Sverrir Bergmann Magnússon (S), Sigurrós Antonsdóttir (S), Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B), Bjarni Páll Tryggvason (B), Díana Hilmarsdóttir (B) og Valgerður Björk Pálsdóttir (Y).
Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Ég kem hér undir lið 1. í fundargerð bæjarráðs frá 13. febrúar. Skammtímafjármögnun Bæjarsjóðs.
Við stöndum nú frammi fyrir alvarlegu lausafjárvandamáli hjá bæjarsjóði. Meirihlutinn, Samfylking, Framsókn og Bein Leið hafa brugðist við þessum fjárhagsvanda með því að taka skammtímalán. Þetta hefur komið til vegna þess að í desember og janúar voru ekki innheimt fasteignagjöld. Það er ekkert nýtt af nálinni og allir ættu að vera meðvitaðir um það og hefði átt að vera öllum ljóst. Þetta er algjörlega óásættanlegt. Það er mikilvægt að stýra fjárflæði samkvæmt innstreymi hverju sinni og gæta þess að til sé sjóður fyrir þá mánuði ársins sem bera minna innstreymi. Stærstu kostnaðarliðir eru þekktir og ætti þetta því ekki að vera að koma okkur á óvart.
Við sjáum að það eru vanáætlanir varðandi útgjöld til dæmis þegar kemur að búnaðarkaupum fyrir Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Auk þess hafa nokkrir stórir reikningar sem tilheyrðu síðasta fjárhagsári komið til greiðslu eftir áramót, svo sem gervigras, lóðarleiga til ríkisins, kaup á búnaði og viðhaldsefni og uppsetningu ljósleiðara í Höfnum. Einnig var framkvæmdakostnaður vegna íþróttamiðstöðvar í Stapaskóla mjög þungur á síðustu mánuðum ársins og umfram fjárfestingaráætlun.
Áætlanagerð Reykjanesbæjar hefur greinilega ekki staðist og skortur er á yfirsýn og samræmingu enda samþykkti Umbót ekki fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 ásamt Sjálfstæðisflokki. Bæjarfulltrúar minnihlutans fengu ekki upplýsingar um þessa stöðu fyrr en á bæjarráðsfundi þann 13. febrúar þegar beiðnin var lögð fram. Það er algjörlega óásættanlegt að svona mikilvæg ákvörðun um fjármál Reykjanesbæjar sé ekki kynnt og rædd áður.
Það er enn óljóst hvað milljarða skammtímalánið mun kosta bæjarbúa þar sem að kjörin frá Landsbankanum á nýtt skammtímalán er ennþá í vinnslu og á eftir að taka hana fyrir hjá lánanefnd.
Ekki má gleyma því að þann 19. nóvember sl., var tillaga bæjarráðs um heimild til lántöku upp á 2,5 milljarða hjá Lánasjóði sveitarfélaga samþykkt í bæjarstjórn. Í minnisblaði sem fylgdi, kom fram að óskað væri eftir heimildinni til að greiða upp skammtímafjármögnun sveitarfélagsins.
Í Ljósi þessa þá spyr ég, getum við treyst því að fjármálastefna Reykjanesbæjar sé raunhæf og áreiðanleg?
Þetta er ekki aðeins spurning um tölur og reikninga, þetta snýst um traust okkar til stjórnar og ábyrgðar gagnvart framtíð Reykjanesbæjar. Nú er rétti tíminn til að endurskoða áætlanir, auka gagnsæi og ábyrgð í fjármálastjórnuninni svo að við tryggjum að hver króna sé notuð á réttan hátt og í hag allra bæjarbúa.
Ég legg því til að við setjum okkur markmið um betri fjármálastjórnun og að framkvæmdir verði aðeins hafnar ef til staðar er nægilegt fjármagn.
Með því að vinna saman og leggja áherslu á traust og gott upplýsingaflæði til minnihlutans, sem er ábótavant og raunhæft skipulag, getum við tryggt farsæla framtíð fyrir Reykjanesbæ.“
Margrét Þórarinsdóttir (U).
Til máls tók Margrét A. Sanders til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Í endurskoðunarskýrslu PWC vegna síðasta ársreiknings Reykjanesbæjar, vegna ársins 2023, kemur eftirfarandi fram:
“Mikilvægt er fyrir sveitarfélagið að fylgjast vel með lausafjárhlutfalli á komandi tímabilum.”
Fyrir nákvæmlega þremur mánuðum, þann 19. nóvember sl., var tillaga bæjarráðs um heimild til lántöku upp á 2,5 milljarða hjá Lánasjóði sveitarfélaga samþykkt í bæjarstjórn. Í minnisblaði sem fylgdi, kom fram að óskað væri eftir heimildinni til að greiða upp skammtímafjármögnun sveitarfélagsins.
Í bæjarráði í síðustu viku, þann 13. febrúar, einungis þremur mánuðum síðar, var lögð fram ósk um eins milljarða skammtímafjármögnun til viðbótar, til eins árs. Í minnisblaði kom fram eftirfarandi rökstuðningur.
Orðrétt segir; “Ekki eru innheimt fasteignagjöld í desember og janúar en það eru um 720 milljónir samanlagt.” Þess verður að geta hér að tekjum vegna fasteignagjalda hefur verið dreift á 10 mánuði, febrúar-nóvember, í fjölda ára og hefði því ekki átt að koma á óvart að þær bærust ekki í desember og janúar.
Ýmsar aðrar ástæður eru taldar upp sem skýringar á sjóðstreymisvandanum, meðal annars fjárútlát vegna hjúkrunarheimilis og að framkvæmdakostnaður vegna íþróttamiðstöðvar í Stapaskóla hafi verið mjög þungur á síðustu mánuðum ársins og umfram fjárfestingaráætlun.
Það vekur athygli, að í minnisblaðinu kemur í fyrsta skipti fram, að framkvæmdakostnaður vegna íþróttamiðstöðvar í Stapaskóla hafi verið umfram fjárfestingaáætlun. Auk þess eru nefnd fjárútlát vegna hjúkrunarheimilis, en Sjálfstæðisflokkurinn og Umbót gerðu athugasemd við það að ekki væri tekið tillit til þeirra og annars kostnaðar, í bókun þegar við sátum hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025, enda töldum við hana ekki raunhæfa. Það er ekki langt liðið á árið þegar ljóst er að við reyndumst sannspá.
Sjálfstæðisflokkurinn spyr því meirihluta Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar;
Hvers vegna lágu upplýsingar um fjárþörf ekki fyrir fyrr?
Hvernig stendur á því að kostnaðar- og sjóðsstreymisáætlanir sem bæjarfulltrúum hafa verið kynntar, standast ekki betur en þetta, strax í upphafi nýs árs?
Það er eitt er að þurfa að fara í lántökur, en er ekki lágmarkskrafa að það sé gert með góðum fyrirvara og stutt af góðum áætlunum til að lágmarka kostnað eins og hægt er?“
Margrét Sanders (D), Guðbergur Reynisson (D) og Helga Jóhanna Oddsdóttir (D).
Fyrsta máls fundargerðar bæjarráðs frá 13. febrúar síðastliðnum Skammtímafjármögnun bæjarsjóðs (2024040272) samþykkt 11-0.
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Kjartan Már Kjartansson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir, Bjarni Páll Tryggvason, Helga Jóhanna Oddsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð bæjarráðs 6. febrúar 2025
Fundargerð bæjarráðs 13. febrúar 2025
2. Fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs 7. og 14. febrúar 2025 (2025010011)
Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 7. febrúar til sérstakrar samþykktar.
Sjötta mál fundargerðarinnar Víkingaheimar – tillaga að lóðarstækkun (2025020051) samþykkt 11-0 án umræðu.
Sjöunda mál fundargerðarinnar Bogatröð 11 – viðbygging (2024050025) samþykkt 11-0 án umræðu.
Áttunda mál fundargerðarinnar Trölladalur 1-11 – fyrirkomulag á sorpskýlum (2025020048) samþykkt 11-0 án umræðu.
Níunda mál fundargerðarinnar Dvergadalur 7 – fyrirspurn (2025010412) samþykkt 11-0 án umræðu.
Tíunda mál fundargerðarinnar Keilisbraut 746 (2022040360) samþykkt 11-0 án umræðu.
Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Ég kem hér undir lið 12 í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 7. febrúar, Metanólframleiðsla- umsagnarbeiðni.
Með leyfi forseta en þar segir í inngangi umhverfis- og skipulagsráðs (hér eftir USK) eftirfarandi.
Fyrirhuguð framkvæmd felst í því að framleiða metanól á lóð sem er innan Auðlindagarðsins við Reykjanesvirkjun. Fyrirhuguð framkvæmd er við hlið fyrirhugaðra vetnis- og metanframleiðslu á sama svæði. Framkvæmdaraðili er Swiss Green Gas International (SGGI)“.
Ég vil því spyrja meirihlutann, Framsókn, Samfylkinguna og Beina leið, hvort að Swiss Green Gas International hafi staðið við fyrri verkefni? Er rekstrarhæfi þess tryggt? Er raunverulega næg koldíox (Co2) losun frá jarðvarmavirkjuninni til staðar fyrir 28 megavatta (MW) framleiðslu? Ef svo er ekki, hvað þarf þá að flytja inn mikið magn af mengun? Hvernig verður tryggt að mengun og önnur áhrif verði í raun innan ásættanlegra marka, ekki bara í byrjun heldur áratugi fram í tímann? Í skýrslunni kemur fram að mengun verði „ásættanleg,“ það er í rauninni huglægt mat sem krefst frekari greiningar, sérstaklega þegar um er að ræða langtímaáhrif. Einnig kemur fram í skýrslunni með leyfi forseta, „áhættumat verður framkvæmt fyrir reksturinn og nákvæmari öryggisaðgerðir verða skilgreindar, byggt á sértækum hættum vegna hugsanlegs metanólsleka. Gerð verður grein fyrir þessum aðgerðum í starfsleyfi.“ Ég get varla orða bundist, hvers vegna er ekki gerð grein fyrir þessum aðgerðum í skýrslunni. Heildarniðurstaða skýrslunnar sem er á bls. 71 segir eftirfarandi með leyfi forseta.
„Vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar eru áhrif á rekstrartíma metin nokkuð neikvæð á sjó og ásýnd lands og landslag. Nokkuð neikvæð áhrif verði á ferðamennsku og útivist. Áhrif vegna efnahættu eru talin nokkuð neikvæð. Ég spyr nú enn og aftur meirihlutann hvort hann muni samþykkja að veita þetta starfsleyfi án þess að fá svör við spurningum mínum sem eru hvergi að finna í skýrslunni. Með það að leiðarljósi hvaða áhrif þetta starfsleyfi muni hafa, þá legg ég til eftirfarandi tillögu „málinu verði frestað þar til að svar berst við spurningum mínum ásamt því að á fá svar af hverju ekki er hægt að gera grein fyrir áhættumati fyrir reksturinn og nákvæmari öryggisaðgerðir verði skilgreindar byggt á sértækum hættum vegna hugsanlegs metanólsleka, en það mun verða gert þegar starfsleyfi fæst.“
Umbót telur að ein svona lítil skýrsla sé alls ekki tæmandi og við munum því sitja hjá við afgreiðslu málsins ef að tillaga mín verður ekki samþykkt. „
Margrét Þórarinsdóttir (U).
Til máls tóku Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét A. Sanders, Kjartan Már Kjartansson og Margrét Þórarinsdóttir.
Forseti gerir fundarhlé kl. 18.05.
Fundur aftur settur kl. 18.17
Tólfta máli, Metanólframleiðsla - umsagnarbeiðni (2024080024) af fundi umhverfis- og skipulagsráðs 7. febrúar frestað 11-0. Bæjarstjórn felur Kjartani Má Kjartanssyni að afla frekari upplýsinga.
Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 7. febrúar 2025
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 14. febrúar 2025
3. Fundargerð lýðheilsuráðs 10. febrúar 2025 (2025010006)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
Til máls tók Díana Hilmarsdóttir.
Margrét Þórarinsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Ég kem hér undir fundargerð lýðheilsuráðs, lið 2. Áfengissala á íþróttaviðburðum - áskorun á sveitarfélög.
Umbót telur að markmiðið ætti ekki að vera að banna vínveitingar á íþrótta- og æskulýðsviðburðum, heldur að tryggja að þær fari fram með ábyrgum hætti. Mikilvægt er að fylgja skýrum reglum og gæta þess að neysla og sala áfengis sé í samræmi við gildandi reglugerðir. Til dæmis að tryggja að enginn undir 18 ára sé á þeim svæðum þar sem áfengi er neytt og að allir fari að settum reglum um sölu og neyslu.
Við berum sameiginlega ábyrgð á því að skapa heilbrigt og öruggt umhverfi fyrir ungmenni okkar. Þau taka eftir því sem við gerum og læra af fordæmi okkar. Ef við sýnum ábyrgð og skynsemi í þessum málum, hjálpum við þeim að þróa heilbrigð viðhorf til áfengis og samfélagslegra gilda. Við ættum að geta verið sammála um að halda þessu í góðu jafnvægi. Við viljum ekki missa stjórnina né að hlutirnir fari úr böndunum.
Ungt fólk er framtíðin og það er okkar hlutverk að tryggja að þau alist upp í umhverfi þar sem heilbrigðir lífshættir og góðar fyrirmyndir eru í fyrirrúmi. Ég treysti íþróttafélögunum til að halda utan um þetta á þann hátt að unga fólkið okkar þurfi ekki að bera skaða af, heldur njóti jákvæðs og uppbyggilegs umhverfis sem styrki þau til framtíðar.“
Margrét Þórarinsdóttir (U).
Valgerður Björk Pálsdóttir (Y) tók til máls og tók undir bókun Margrétar.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð lýðheilsuráðs 10. febrúar 2025
4. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 12. febrúar 2025 (2025010005)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Valgerður Björk Pálsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 12. febrúar 2025
5. Fundargerð velferðarráðs 13. febrúar 2025 (2025010012)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Sigurrós Antonsdóttir, Margrét Þórarinsdóttir og Margrét A. Sanders.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð velferðarráðs 13. febrúar 2025
6. Fundargerð menntaráðs 14. febrúar 2025 (2025010008)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Sverrir Bergmann Magnússon og Helga Jóhanna Oddsdóttir.
Samþykkt 11-0 að vísa fyrsta máli menntaráðs Beiðni um framkvæmdir (2024040176) til bæjarráðs.
Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð menntaráðs 14. febrúar 2025
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.45