Kjartan Már og hr. Jin Zhijian á skrifstofu bæjarstjóra í gær.
Sendiherra Kína á Íslandi, hr. Jin Zhijian, heimsótti Reykjanesbæ í gær og fundaði með Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra. Á meðal þess sem þeir ræddu var hvernig auka mætti og styrkja tengsl Reykjanesbæjar og vinahéraðsins Xianyang í Kína. Stofnað var til formlegra vinabæjatengsla á milli sveitarfélaganna snemma árs 2014. Þetta mætti t.d. gera á sviði menningar, viðskipta og/eða menntamála.
Lítil sem engin samskipti hafa verið á milli sveitarfélaganna frá stofnun vinabæjatengslanna önnur en að vara borgarstjóri Xianyang heimsótti Reykjanesbæ ásamt fríðu föruneyti árið 2017 í stuttri heimsókn til Íslands. Í þeirri heimsókn heimsóttu gestirnir m.a. orkuver HS Orku í Svartsengi en í Xianyang hafa verið gerðar tilraunir með hitaveitu enda heitt vatn og jarðhiti þar.