Hljómahöll hlaut í dag verðlaun á Degi íslenskrar tónlistar þar sem veitt verðlaun fyrir einstaklinga og hópa sem að þykja hafa lagt lóð á vogarskálar í að efla íslenskt tónlistarlíf undanfarin misseri og þykja sýna íslenskri tónlist sérstakt atfylgi.
Á verðlaununum, sem bera nafnið Glugginn, segir að „Hljómahöll í Reykjanesbæ hljóti verðlaun fyrir að halda úti heimili íslenskrar tónlistar í Reykjanesbæ með hugmyndaríku safni og fjölbreyttri tónlistardagskrá undanfarin ár.“
Viðburðurinn fór fram í Hörpu og komu fram Karlakórinn Fóstbræður, Snorri Helgason, Systur, Auður Jónsdóttir rithöfundur og Bragi Valdimar Skúlason.
Tómas Young, framkvæmdastjóri Hljómahallar, tók við viðurkenningunni fyrir hönd Hljómahallar.