Árlegur sjálfboðaliðadagur leikskólans Tjarnarsels var í síðustu viku. Þá komu saman starfsfólk, foreldrar, leikskólabörn og aðrir fjölskyldumeðlimir til að smíða, steypuvinna, gróðursetja, hanna og fegra á fallega úti-leiksvæði skólans.
Vorið 2013 tók fyrrnefndur hópur höndum saman og umbylti útisvæði leikskólans og notuðu til þess sem mest af endurnýtanlegum og náttúrulegum efnivið, með sjálfbærni, lýðræði og sköpun að leiðarljósi. Síðan þá hafa verið haldnir vinnudagar á hverju vori sem einkennst hafa af vinnusemi, krafti og gleði sem hefur skilað ævintýraveröld, sem allir geta verið stoltir af og er eins og sagan endalausa, tekur engan endi.
Hönnun útisvæðisins byggir á því að börn fái að upplifa árstíðabundnar breytingar í náttúrunni; þegar gróður og smádýr vakna til lífsins á vorin, þegar allt er í blóma á sumrin, breytingar og litbrigði náttúrunnar á haustin og sofandi gróður á veturna. Einnig að skapa börnunum umhverfi sem kennir þeim að njóta náttúrunnar og bera virðingu fyrir henni.
Verkefnið hefur vakið töluverða athygli og hafa leik- og grunnskólakennarar heimsótt skólann til að kynna sér og skoða útisvæðið. Tvívegis hefur verkefnið hlotið styrk úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla og nú á dögunum veitti stjórn Fríhafnarinnar leikskólanum styrk úr pokasjóði sínum.
Forsvarsmenn leikskólans senda öllum sjálfboðaliðunum, alls um 50 manns, innilegustu þakkir fyrir ómetanlegt framlag sem mun gleðja Tjarnarselsbörnin dag hvern við leik og störf.