Einn af 6 vinnuhópum á fundi um endurskoðun menningarstefnu. Tónlistarhópurinn undir stjórn Tómasar Young framkvæmdastjóra Hljómahallar og Baldurs Þ. Guðmundssonar fulltrúa úr menningarráði.
Hátt í eitt hundrað manns tóku þátt í líflegum vinnufundi menningarráðs Reykjanesbæjar í gær þegar bæjarbúum var gefinn kostur á að koma að endurskoðun menningarstefnu sveitarfélagsins sem nú stendur yfir.
Í máli Guðbjargar Ingimundardóttur formanns menningarráðs kom fram að nú væri góður tími til að taka stöðuna. Einnig að það verkefni biði nýs ráðs að vinna úr því efni sem fram kæmi og móta menningarstefnu til framtíðar.
Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi rakti þróun og stöðu menningarmála í sveitarfélaginu í stuttu máli og myndum. Í framhaldinu var lagt upp í hópavinnu. Þátttakendur gátu valið sér þrjá umræðuhópa af sex og tuttugu mínútna skoðanaskipti fóru fram í hverjum hópi. Snarpar og fjölbreyttar umræður sköpuðust.
Á fundarmönnum var að heyra að flestum fannst mikið og gott starf hafa unnist í menningarmálum á síðustu 15 til 20 árum. Ef fólk ætlaði sér að mæta á alla þá menningarviðburði sem í boði eru í sveitarfélaginu hefði það vart undan. Alltaf megi þó gera betur en með því sé ekki endilega átt við að fjölga þurfi viðburðum eða menningarstofnunum. Frekar sé hlúð vel að því starfi sem er til staðar með því að styrkja það, þróa og bæta sbr. fyrirsögnin hér að ofan. Í því samhengi var m.a. nefnt að mikilvægt væri að skapa aðstöðu eða vettvang til að menningin geti blómstrað t.d. frá grasrótinni.
Þá var nokkuð rætt um hvernig best verði staðið að kynningu á menningarviðburðum og starfi þannig að það nái í gegn til fólks. Loks var áberandi fjölmenningartónn í umræðunni í ljósi þess að erlendum íbúum hefur fjölgað til mikilla muna í bænum. Þátttakendum var umhugað um að sá hópur hefði aðkomu að menningarstarfi bæjarins.
Tillögur fundarmanna verða nú lagðar fram á næsta fundi menningarráðs Reykjanesbæjar sem tekur ákvörðun um næstu skref í endurskoðun stefnunnar.