Fiskeldi á Reykjanesi - uppbygging

Þriðjudaginn 18. júní 2024, undirrituðu Samherji fiskeldi ehf. og Reykjanesbær samkomulag um aðkomu sveitarfélagsins að uppbyggingu Samherja fiskeldis ehf. á landeldisstöð í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi. Fiskeldisstöðin samanstendur af seiðastöð, áframeldisstöð og vinnsluhúsi ásamt stoð- og tæknibyggingum. Eldisstöðin miðast við laxeldi en þó er gert ráð fyrir möguleikanum að í stöðinni geti einnig verið bleikju- og regnbogasilungseldi.

Í umhverfismatsskýrslu verkefnisins kemur fram að aðstæður í Auðlindagarðinum séu afar hagstæðar hvað snertir aðgengi að jarðsjó, ylsjó og rafmagni. Allt frárennsli stöðvarinnar verður hreinsað til að lágmarka álag á viðtaka. Samherji fiskeldi stefnir á að framleiðslugeta nýrrar eldisstöðvar verði 40.000 tonn á ársgrundvelli. Til framleiðslunnar áætlar félagið að nota að hámarki 30.000 l/s af jarðsjó, um 100 l/sek af ferskvatni og um 3.200 l/s af ylsjó frá Reykjanesvirkjun sem í dag rennur að hluta ónýttur til sjávar.

Ráðgert er að framkvæmdir við eldisgarðinn hefjist þegar fjármögnun og öllum leyfismálum tengdum framkvæmdinni er lokið og verður þeim skipt í þrjá áfanga. Framkvæmdir við fyrsta áfanga taka um tvö ár en heildarframkvæmdatími er um tíu ár.

Við uppbyggingu landeldisstöðvar af þessari stærðargráðu verður til mikil þekking og reynsla tengd fiskeldi á landi og nýtingu jarðhita við starfsemina. Í eldisstöðinni koma til með að starfa um 100 starfsmenn með mismunandi menntun og reynslu þegar stöðin verður komin í fullan rekstur, en á framkvæmdatíma má jafnframt gera ráð fyrir að 300-400 starfsmenn vinni við byggingu stöðvarinnar, þ.e. iðnaðarmenn, starfsmenn verktaka og tæknimenn. Þá eru ótalin afleidd störf, bæði á framkvæmdatíma og eftir að rekstur hefst.

Varðandi nánari upplýsingar um fyrirhugaða uppbyggingu er bent á viðkomandi umhverfismatsskýrslu verkefnisins