Fyrsta skemmtiferðaskipið leggur að Keflavíkurhöfn

Laugardag, 29. júní kl. 10-20

  • Afþreying, tilboð og opnunartímar verslana

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins leggur að Keflavíkurhöfn á laugardag, 29. júní nk. Skipið er jafnframt fyrsta skipið sem kemur í höfn frá því að verkefnið um að markaðssetja Keflavíkurhöfn sem skemmtiferðaskipahöfn hófst. Verkefnið er samstarfsverkefni Reykjaneshafna, Reykjanesbæjar og Markaðsstofu Reykjaness þar sem unnið hefur verið að því að þróa og markaðssetja svæðið með tilliti til móttöku smærri skemmtiferðaskipa.

Skipið sem leggur í höfn er frá Azamara Cruises og heitir Azamara Quest. Skipið er 30 þúsund tonn og tekur um 700 farþega auk starfsfólks. Áætlað er að gestir geti farið í land um kl. 10.00 og hafi tíma til kl. 20.00 til að skoða sig um.

Um 200 farþegar hafa nú þegar skráð sig í skipulagðar ferðir um Reykjanesið og nærsvæði og má því áætla að eftir standi um 400 gestir auk starfsfólks komi til með að dvelja í skipinu, ganga um bæinn í leit að upplifun, verslun eða leita að öðrum ferðum.

Fréttin var fyrst birt á vef Markaðsstofu Reykjaness