Til að stuðla að öruggara umhverfi í hlákunni næstu daga býður Umhverfissvið Reykjanesbæjar bæjarbúum að sækja sér sand til hálkuvarna. Íbúar geta sótt sand í eigin ílát á nokkrum stöðum í bænum og notað hann til að hálkuverja innkeyrslur og nærsvæði sín.
Hvar er hægt að nálgast sand?
Sandhrúgur hafa verið settar á níu staði í Reykjanesbæ og eru merktir með rauðum punktum á yfirlitskorti:
- Á Heiðarbergi
- Á neðra planinu við Grófina 2
- Á planinu við Reykjaneshöll
- Hjá Umhverfismiðstöðinni, Fitjabraut 1c
- Við Trönudal 9
- Hjá Byggðasafni, Stapabraut
- Lindarbraut á milli 637-639
- Á Þjóðbraut, við Grænásbraut
- Á planinu við félagsheimilið í Höfnum
Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta úrræði og tryggja þannig betri aðstæður á sínum heimilislóðum.
Deildu þessari tilkynningu með öðrum til að tryggja að sem flestir viti af þessu!