Tímamótasamningur um íbúðauppbyggingu á Ásbrú

Í gær var undirritaður samningur um fyrstu húsnæðisuppbyggingu á Ásbrú frá því að varnarliðið yfirgaf svæðið. Gert er ráð fyrir lágreistri byggð og lögð verður áhersla á að skapa grænt og barnvænt umhverfi.

Í gær skrifuðu Reykjanesbær, Kadeco (Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar) og byggingafélagið Stofnhús undir samning um þróun og uppbyggingu íbúðabyggðar á svonefndum Suðurbrautarreit á Ásbrú. Um er að ræða fyrstu húsnæðisuppbyggingu á Ásbrú eftir brotthvarf Bandaríkjahers.

Reiturinn er miðsvæðis á Ásbrú, um 33 þúsund fermetrar að flatarmáli og kveður samningurinn á um að á reitnum verði byggðar að lágmarki 150 íbúðir.

Samið var um að Stofnhús myndi greiða Kadeco 150 milljónir króna fyrir byggingarréttinn en landið er í eigu ríkisins og mun Reykjanesbær m.a. koma að uppbyggingu nýrra gatna í tengslum við verkefnið.

Deiliskipulag um svæðið verður gert á grunni nýs rammaskipulags fyrir Ásbrú þar sem gert er ráð fyrir lágreistri en fjölbreyttri byggð fjölbýlishúsa í anda þess byggðamynsturs sem fyrir er á svæðinu. Áhersla er m.a. á blágrænar ofanvatnslausnir og grænt og barnvænt umhverfi. Gert er ráð fyrir að deiliskipulag fyrir reitinn verði kynnt og auglýst næsta vetur og þess er vænst að uppbygging geti hafist fljótlega í kjölfarið.

Með þessum samningi er brotið blað í sögu Ásbrúar, en um er að ræða fyrstu uppbyggingu á íbúðarhúsnæði á svæðinu frá því að varnarliðið yfirgaf svæðið árið 2006. Verið er að taka stórt skref í skipulagsmálum í Reykjanesbæ, en samkvæmt aðalskipulagi er Ásbrú helsta uppbyggingarsvæði bæjarins á komandi árum. Í nýju rammaskipulagi Ásbrúar, sem nú er í auglýsingu, er gert ráð fyrir að íbúum fjölgi upp í allt að 14 þúsund til ársins 2050, en það er álíka og íbúafjöldi Mosfellsbæjar í dag.

„Þessi samningur er mikið fagnaðarefni en með honum er stigið stórt skref í uppbyggingu á Ásbrú. Áætlanir um framtíðaruppbyggingu á svæðinu eru mjög metnaðarfullar enda höfum við fundið fyrir miklum áhuga úr ýmsum áttum á svæðinu og það er einstaklega ánægjulegt að við getum lagt okkar að mörkum í framtíðaruppbyggingu á svæðinu. Mikil þörf er á íbúðahúsnæði á Reykjanesi og með þessari þróun eykst einnig grundvöllur fyrir ýmis konar þjónustu á svæðinu,“ segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.

Uppbygging á Ásbrú er liður í nýrri þróunaráætlun fyrir nærsvæði Keflavíkurflugvallar, K64, þar sem horft er fram til ársins 2050. Þróunaráætlunin er heildstæð sýn á uppbyggingu í kringum Keflavíkurflugvöll á ákveðnum þróunarsvæðum sem saman mynda vistkerfi sem einkennist af samvinnu og sambúð iðnaðar, samgangna, nýsköpunar og sjálfbærrar byggðaþróunar.