Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Sumardagskrá Duus Safnahúsa hefst með opnun fjögurra nýrra sýninga næstkomandi föstudag. Þess má geta að ókeypis aðgangur verður í húsin í júní, júlí og ágúst.
Skessumílan - heilsuefling fyrir alla fjölskylduna
02.06.2020 Fréttir
Fimmtudaginn 4. júní munu Reykjanesbær og Skessan í hellinum standa fyrir heilsueflingarviðburði fyrir alla fjölskylduna, þar sem gengið eða skokkað er frá hafnarvoginni við Keflavíkurhöfn og út í smábátahöfnina eftir göngustígnum við sjávarsíðuna.
Um er að ræða 1,6 km langa gönguferð eða skokk þar…
Reykjanesbær hefur farið í fjölmargar aðgerðir til að sporna við þeim efnahagslegu áföllum sem nú ganga yfir. Viðbrögðin miðast við að fjölga störfum eins og hægt er, með það að markmiði að draga úr atvinnuleysi og ekki síður að vernda önnur störf í atvinnulífi svæðisins. Hér fyrir neðan má sjá nok…
Gjaldþrot Capacent hefur ekki áhrif á starfssemi Reykjanesbæjar
28.05.2020 Fréttir
Rétt er að árétta að gjaldþrot ráðgjafafyrirtækisins Capacent mun ekki með neinum hætti hafa áhrif á starfsemi Reykjanesbæjar.
Ráðningar í störf hjá sveitarfélaginu eru alfarið unnar af starfsmönnum bæjarins og hefur verið um nokkurt skeið. Kaup á annarri ráðgjafarþjónustu en ráðningarþjónustu af C…
Nú eru úrslitin kunn í stórskemmtilegum þrautaleik fjölskyldunnar sem fram fór í Reykjanesbæ um liðna helgi. Leikurinn var unnin í samstarfi Reykjanesbæjar og Skemmtigarðsins og byggðist á að leysa alls kyns sniðugar þrautir víðs vegar um bæinn með símann og gleðina að vopni.
Drög að ársreikningi Reykjanesbæjar 2019 í meðferð hjá bæjarstjórn
25.05.2020 Fréttir
Seinkun hefur orðið á að birta ársreikning Reykjanesbæjar 2019 vegna þeirra takmarkana sem yfirvöld settu á með samkomubanni í mars síðastliðnum. Í kjölfarið var ljóst að bráðabirgðalagabreytingu þyrfti til þegar kæmi að endurskoðun og samþykki ársreikninga sveitarfélaga. Sveitarstjórnarlögin kveða …
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur tekið þá ákvörðun að boðið verði upp á ókeypis aðgang í Rokksafn Íslands og Duus Safnahús, menningar og listamiðstöð Reykjanesbæjar frá 1.júní – 31.ágúst. Er þessi ákvörðun tekin sem liður í að bjóða Íslendinga velkomna til Reykjanesbæjar á ferðum sínum um landið í suma…
Hægt er að sækja um afnot af matjurtagörðum fyrir sumarið 2020 - eftir 25. maí næstkomandi. Í boði eru sérútbúnir kassar eða afmarkaðir reitir til ræktunar. Kassarnir verða á tveimur stöðum í sumar á opna svæðinu við Leikskólann Holt í Innri Njarðvík og í Grófinni í Keflavík. Í Grófinni eru 18 kass…