Börnin að borðinu hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2024

Hönnunarteymi Þykjó ásamt Samúel Torfa Péturssyni frá Kadeco og Hilmu Hólmfríði frá Reykjanesbæ
Hönnunarteymi Þykjó ásamt Samúel Torfa Péturssyni frá Kadeco og Hilmu Hólmfríði frá Reykjanesbæ

Reykjanesbær gleðst innilega yfir því að framúrskarandi verkefnið „Börnin að borðinu“ hlaut Hönnunarverðlaun Íslands fyrir verk ársins 2024. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í gær, 7. nóvember, í Grósku, þar sem fulltrúar frá Reykjanesbæ, Háaleitisskóla og Kadeco voru viðstaddir.

Í mars á þessu ári fengu nemendur í Háaleitisskóla einstakt tækifæri til að taka þátt í þróunarverkefninu Skapaðu morgundaginn, nú undir nafninu Börnin að borðinu, sem að Reykjanesbær og Kadeco unnu í samstarfi með frábæra hönnunarteyminu ÞYKJÓ á þemadögum skólans. Börnin að borðinu leggur áherslu á að gefa börnum rödd í skipulags- og hönnunarferlum. Verkefnið hefur sýnt hvernig sjónarmið barna geta auðgað samfélagið og skapað líflegra og fjölbreyttara umhverfi þar sem óskir allra aldurshópa eru virtar.  Hægt er að lesa meira um verkefnið hér.

Hönnunarverðlaun Íslands hafa þann tilgang að varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Verðlaunahafar eru valdir úr hópi verkefna sem skara fram úr og endurspegla það besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs, með áherslu á frjóa hugsun, snjallar lausnir, vandaða útfærslu og fagurfræði. Verkefnin þurfa að vera notendavæn, nýskapandi og stuðla að jákvæðum áhrifum á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.

Þessi viðurkenning er mikilvægur áfangi í áformum Reykjanesbæjar um að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þvert á alla stjórnsýsluna í gegnum verkefnið Barnvænt sveitarfélag í samstarfi við UNICEF. Hún undirstrikar einnig þann árangur sem næst þegar hlustað er á raddir barna og samfélagið þróast með skapandi og framsæknum hætti. Reykjanesbær vill þakka öllum sem komu að þessu verkefni og lögðu sitt af mörkum til að tryggja þennan frábæra árangur.

Hjartanlega til hamingju öll!