Jólahús og jólafyrirtæki 2024

Jólahús Reykjanesbæjar, Gónhóll 11
Jólahús Reykjanesbæjar, Gónhóll 11

Íbúar í Reykjanesbæ eru margir hverjir sannkölluð jólabörn og leggja mikinn metnað í jólaskreytingar. Það  hefur því verið einstaklega gaman að  keyra um bæinn og skoða fallega upp lýst hús og fyrirtæki sem lýst hafa upp svartasta skammdegið. Þar sem bærinn okkar stækkar stöðugt geta glæsilegar jólaskreytingar leynst víða og því þótti tilvalið á aðventunni að smella í laufléttan jólaleik þar sem íbúar gátu komið með tillögur að jólahúsi Reykjanesbæjar og einnig jólafyrirtæki Reykjanesbæjar en margir fyrirtækjaeigendur leggja líka metnað í fallegar skreytingar. Allt var þetta fyrst og fremst hugsað til skemmtunar og til að vekja athygli á því sem vel er gert hjá íbúum og fyrirtækjaeigendum Reykjanesbæjar en Húsasmiðjan studdi við bakið á uppátækinu með gjafabréfi til fulltrúa þessara aðila.

Það var menningar- og þjónusturáð Reykjanesbæjar sem fékk það skemmtilega verkefni að útnefna jólahús og jólafyrirtæki Reykjanesbæjar árið 2024 úr tilnefningum sem bárust frá íbúum. Ráðið vill hrósa íbúum fyrir augljósan metnað þegar kemur að jólaskreytingum og þakkar þeim sem sendu inn tilnefningar en þær voru fjölmargar og fjölbreyttar.

Keppnin var nokkuð hörð og fleiri en eitt hús sem kom til greina en að þessu sinni var það Gónhóll 11 sem hlaut nafnbótina jólahús Reykjanesbæjar 2024. Þar gaf að líta einstaklega fallega og fjölbreytta jólaveröld sem gleður jafnt börn sem fullorðna. Eigendur hússins eru Jón Halldór Jónsson og Hólmfríður Margrét Grétarsdóttir.

Í ár var einnig ákveðið að kalla eftir tilnefningum á jólafyrirtæki Reykjanesbæjar enda margar verslanir og fyrirtæki sem leggja sig fram við að glæða bæinn ljósum og lífi með fallegum utanhússkreytingum eða töfrandi jólagluggum. Það fór svo að úr innsendum tillögum hreppti hnossið Bílakjarninn og Nýsprautun, Njarðarbraut 13, þar sem blöstu við stílhreinar og smekklegar jólaskreytingar sem nutu sín m.a. vel frá Reykjanesbraut.

Það var Sverrir Bergmann bæjarfulltrúi og fulltrúi menningar- og þjónusturáðs Reykjanesbæjar ásamt Guðlaugu Maríu Lewis menningarfulltrúra sem færðu eigendum jólahússins og jólafyrirtækisins viðurkenningu frá Reykjanesbæ  og Húsasmiðjunni.