Reykjanesbær býður til fundar um málefni ferðaþjónustu í sveitarfélaginu og nágrenni. Markmiðið er að styðja við og efla ferðaþjóna á svæðinu ásamt því að auka samstarf.
Dagskrá:
- Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar býður gesti velkomna
- Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra ávarpar fundinn
- Þórdís Ósk Helgadóttir sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs Reykjanesbæjar fer yfir áherslur í málaflokki ferðaþjónustunnar
- Hjalti Már Einarsson viðskiptaþróunarstjóri hjá Datera flytur erindið „Hvað með okkur hin, sem erum ekki seglar í íslenskri ferðaþjónustu?“
- Brynjar Vatnsdal deildarstjóri þróunardeildar hjá Isavia- fer yfir farþegaspár, ferðamannaspár, fjárfestingar og framkvæmdir”
- Eyþór Sæmundsson verkefnastjóri Markaðsstofu Reykjaness fer yfir áherslur áfangastaðarins Reykjaness
- María Hjálmarsdóttir sérfræðingur í stefnumótun flytur erindið „samvinna um sameiginlega hagsmuni”
- kaffiveitingar og spjall
Fundarstjóri: Birgitta Rún Birgisdóttir
SKRÁNING hér